Orðskviðirnir 29 - Biblían (2007)

1Þeim sem oft hefur verið átalinn en þrjóskast við

verður skyndilega hrundið og engin lækning fæst.

2Þegar réttlátum vex máttur gleðst þjóðin

en þegar ranglátir drottna stynur þjóðin.

3Sá sem elskar visku gleður föður sinn

en sá sem leggur lag sitt við skækjur glatar eigum sínum.

4Konungurinn eflir landið með rétti

en þungar álögur eyða það.

5Smjaðri maður fyrir náunga sínum

leggur hann net fyrir fætur hans.

6Í misgjörð vonds manns er honum búin snara

en réttlátur maður fagnar og gleðst.

7Réttlátur maður kynnir sér málefni hinna lágt settu

en ranglátur maður hirðir ekki um að kynna sér þau.

8Spottarar æsa upp borgina

en vitrir menn lægja reiðina.

9Þegar vitur maður á í þrætu við afglapa

reiðist og hlær afglapinn en lausn fæst engin.

10Blóðvargarnir hata hinn ráðvanda

en réttvísir menn láta sér annt um líf hans.

11Heimskinginn eys út allri reiði sinni

en vitur maður hefur stjórn á henni.

12Þegar valdhafinn hlýðir á lygaorð

verða allir þjónar hans sekir.

13Fátæklingurinn og kúgarinn mætast,

Drottinn ljær ljós augum beggja.

14Dæmi konungur hina lágt settu af réttvísi

mun hásæti hans standa stöðugt að eilífu.

15Vöndur og umvöndun veita speki

en agalaus sveinn gerir móður sinni skömm.

16Þegar ranglátum fjölgar, fjölgar og misgjörðum

en réttlátir munu horfa á fall þeirra.

17Agaðu son þinn, þá mun hann láta þig hafa ró

og veita sál þinni unað.

18Þar sem engar vitranir eru týnir fólk áttum

en sá sem varðveitir lögmálið er sæll.

19Þræll verður ekki agaður með orðum,

hann skilur þau að vísu en fer ekki eftir þeim.

20Sjáir þú mann sem er fljótfær í orðum,

þá á heimskinginn meiri von en hann.

21Dekri maður við þræl sinn frá barnæsku

verður hann vanþakklátur að lokum.

22Reiðigjarn maður vekur deilur

og skapbráður maður drýgir marga synd.

23Hroki mannsins lægir hann

en sæmd bíður hins hógværa.

24Þjófsnauturinn hatast við sjálfan sig,

hann hlýðir á bölvunina en lætur þó ekkert uppi.

25Ótti við menn leiðir í snöru

en þeim er borgið sem treystir Drottni.

26Margir leita hylli valdhafans

en réttur mannsins kemur frá Drottni.

27Andstyggð réttlátra er sá sem ranglæti fremur

og andstyggð ranglátra sá sem breytir ráðvandlega.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help