Síðari Samúelsbók 2 - Biblían (2007)

Davíð konungurDavíð konungur í Júda

1Nokkru síðar leitaði Davíð svara hjá Drottni og spurði: „Á ég að fara til einhverrar borgar í Júda?“ Drottinn svaraði: „Já, far þú.“ Þá spurði Davíð: „Hvert á ég að fara?“ „Til Hebron,“ svaraði hann.

2Davíð fór þá þangað ásamt báðum konum sínum, Akínóam frá Jesreel og Abígail sem áður hafði verið eiginkona Nabals frá Karmel.

3Davíð tók einnig með sér mennina, sem höfðu fylgt honum, og fjölskyldur þeirra og þeir settust að í borgunum umhverfis Hebron.

4Síðan komu Júdamenn og smurðu Davíð til konungs yfir ættkvísl Júda.

Þegar Davíð var sagt frá því að íbúar Jabes í Gíleað hefðu grafið Sál

5sendi hann boðbera til Jabes í Gíleað og lét skila til íbúanna: „Drottinn blessi ykkur fyrir að sýna Sál, herra ykkar, þá tryggð að grafa hann.

6Megi Drottinn nú auðsýna ykkur náð og trúfesti. Ég mun einnig launa ykkur fyrir að gera þetta.

7Verið nú djarfir og hraustir. Sál, herra ykkar, er að vísu dáinn en Júdaættkvísl hefur smurt mig til konungs.“

Ísbóset konungur í Norðurríkinu (Ísrael)

8Abner Nersson, sem fyrrum var hershöfðingi Sáls, hafði sótt Ísbóset, son Sáls, og farið með hann til Mahanaím

9og gert hann að konungi yfir Gíleað, Aser, Jesreel, Efraím, Benjamín og öllum Ísrael.

10Ísbóset, sonur Sáls, var fertugur þegar hann varð konungur yfir Ísrael og ríkti tvö ár. Aðeins Júdaættkvísl studdi Davíð.

11Davíð var konungur í Hebron sjö ár og sex mánuði.

Ófriður milli Ísraels og Júda

12Abner Nersson hélt frá Mahanaím til Gíbeon ásamt mönnum Ísbósets, sonar Sáls.

13En Jóab Serújuson og menn Davíðs höfðu einnig haldið af stað og mættu þeir þeim við tjörnina í Gíbeon. Flokkarnir komu sér fyrir beggja vegna tjarnarinnar.

14Þá sagði Abner við Jóab: „Við skulum láta nýliðana ganga fram fyrir okkur og reyna með sér,“ og samsinnti Jóab því.

15Þá risu á fætur og gengu fram rétt taldir tólf menn fyrir Benjamín og Ísbóset, son Sáls, og tólf af mönnum Davíðs.

16Síðan þreif hver þeirra í höfuð andstæðings síns og rak sverð sitt í síðu hans svo að báðir féllu. Þess vegna var þessi staður, sem er við Gíbeon, nefndur Brandaakur.

17Dag þennan börðust liðin af hörku og fóru Abner og hermenn Ísraels halloka fyrir mönnum Davíðs.

18Þar voru þrír synir Serúju, Jóab, Abísaí og Asael. Asael var fótfrár eins og gasella á víðavangi.

19Hann hljóp nú á eftir Abner og vék hvorki til hægri né vinstri heldur elti Abner einan.

20Abner sneri sér þá við og spurði: „Ert þetta þú, Asael?“ Hann játti því.

21Þá sagði Abner: „Snúðu þér heldur annaðhvort til hægri eða vinstri, gríptu einhvern af ungu hermönnunum og taktu af honum brynjuna.“ En Asael vildi ekki hætta eftirförinni.

22Þá sagði Abner aftur við Asael: „Hættu að elta mig. Hvers vegna ætti ég að höggva þig? Hvernig ætti ég þá að geta litið framan í Jóab, bróður þinn?“

23En þegar hann vildi ekki hætta rak Abner spjótskaft sitt í kvið hans svo að það gekk út um bakið. Hann féll þegar dauður niður. Allir, sem komu þangað sem Asael hafði fallið, námu staðar

24en Jóab og Abísaí tóku nú að elta Abner. Þegar sólin var gengin til viðar voru þeir komnir að Ammahæð gegnt Gíak, við veginn út í eyðimörkina við Gíbeon.

25Þá söfnuðust Benjamínítar að baki Abners, mynduðu þétta fylkingu og tóku sér stöðu efst á hæð einni.

26Síðan hrópaði Abner til Jóabs og sagði: „Á endalaust að fóðra sverðið? Skilurðu ekki að endalokin verða bitur? Hversu lengi ætlar þú að láta dragast að skipa mönnum þínum að hætta að elta bræður sína?“

27Jóab svaraði: „Svo sannarlega sem Guð lifir hefði herinn ekki hætt að elta bræður sína fyrr en á morgun ef þú hefðir ekki sagt þetta.“

28Því næst þeytti Jóab hafurshornið, herinn nam staðar, hætti að elta Ísrael og lagði niður vopnin.

29Abner og menn hans gengu alla nóttina eftir Jórdanardalnum, fóru yfir Jórdan, gengu um Bítrón og komu loks heim til Mahanaím.

30Þegar Jóab hætti að elta Abner safnaði hann hernum saman. Þá vantaði nítján af mönnum Davíðs fyrir utan Asael

31en menn Davíðs höfðu fellt þrjú hundruð og sextíu af Benjamínítum, af mönnum Abners.

32Þeir tóku Asael með sér og lögðu hann í gröf föður síns í Betlehem. Síðan gengu Jóab og menn hans alla nóttina og komu til Hebron í birtingu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help