Sálmarnir 69 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Liljulag. Davíðssálmur.

2Hjálpa mér, ó Guð,

því að vötnin ná mér upp að hálsi.

3Ég er sokkinn í botnlausa leðju

og hef enga fótfestu.

Ég er kominn út á djúpið

og bylgjurnar ganga yfir mig.

4Ég hef hrópað mig þreyttan,

með brunasviða í kverkunum,

augu mín eru döpruð orðin

af að þreyja eftir Guði mínum.

5Fleiri en hárin á höfði mér

eru þeir er hata mig að ástæðulausu.

Þeir sem vilja tortíma eru voldugir,

óvinir mínir án saka.

Ég hef orðið að skila því sem ég rændi ekki.

6Þú, Guð, þekkir heimsku mína

og sakir mínar dyljast þér eigi.

7Lát eigi þá er vona á þig

verða til skammar mín vegna,

ó, Drottinn, Drottinn hersveitanna.

Lát eigi þá er leita þín

verða til minnkunar mín vegna,

þú Guð Ísraels.

8Þín vegna ber ég háðung

svo að andlit mitt roðnar af blygðun.

9Ég er ókunnur orðinn bræðrum mínum

og framandi sonum móður minnar.

10Vandlæting vegna húss þíns hefur tært mig upp

og smánaryrði þeirra er smána þig hafa lent á mér.

11Ég auðmýkti mig með föstu

en fyrir það fékk ég háð eitt,

12hafði hærusekk fyrir klæði

og þeir ortu háðkvæði um mig.

13Þeir sem sitja í borgarhliðinu slúðra um mig

og drukknir menn syngja um mig háðkvæði.

14En ég bið til þín, Drottinn, á stund náðar þinnar.

Svara mér, Guð, í trúfesti hjálpræðis þíns

sakir mikillar miskunnar þinnar.

15Bjarga mér úr kviksyndinu svo að ég sökkvi eigi,

bjarga mér frá hatursmönnum mínum

og úr hafdjúpinu.

16Lát eigi vatnselginn færa mig í kaf,

né hyldýpið svelgja mig

og lát eigi brunninn ljúkast aftur yfir mér.

17Bænheyr mig, Drottinn, sakir gæsku náðar þinnar,

snú þér að mér af mikilli miskunn þinni.

18Hyl eigi auglit þitt fyrir þjóni þínum

því að ég er í nauðum staddur,

flýt þér að bænheyra mig.

19Ver mér nálægur, leys mig,

frelsa mig frá óvinum mínum.

20Þú þekkir háðung mína, skömm og svívirðing,

allir fjendur mínir standa þér fyrir sjónum.

21Háðungin kramdi hjarta mitt svo að ég örvænti.

Ég vonaði að einhver sýndi meðaumkun en þar var enginn,

og að einhverjir hugguðu en fann engan.

22Þeir fengu mér malurt til matar

og við þorstanum gáfu þeir mér edik að drekka.

23Verði borðið fyrir framan þá að gildru,

fórnarveisla þeirra þeim að snöru,

24augu þeirra myrkvist svo að þeir sjái ekkert,

lendar þeirra skjálfi um alla framtíð.

25Hell þú reiði þinni yfir þá

og lát þína brennandi gremi ná þeim.

26Búðir þeirra verði eyddar

og enginn búi í tjöldum þeirra

27því að þann sem þú hefur lostið ofsækja þeir

og auka þjáningar þeirra er þú hefur sært.

28Bæt sök við sök þeirra

og lát þá eigi ganga inn í réttlæti þitt.

29Verði þeir afmáðir úr lífsins bók

og eigi skráðir með réttlátum.

30En ég er volaður og þjáður,

hjálp þín, Guð, mun bjarga mér.

31Ég vil lofa nafn Guðs í ljóði

og mikla hann í lofsöng.

32Það mun Drottni líka betur en uxar,

ungneyti með hornum og klaufum.

33Hinir auðmjúku sjá það og gleðjast,

þér sem leitið Guðs − hjörtu yðar lifni við

34því að Drottinn hlustar á hina fátæku

og fyrirlítur eigi bandingja sína.

35Hann skulu lofa himinn og jörð,

höfin og allt sem í þeim hrærist.

36Því að Guð hjálpar Síon,

reisir við borgirnar í Júda

og menn skulu búa þar

og fá landið til eignar.

37Niðjar þjóna hans munu erfa það

og þeir er elska nafn hans byggja þar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help