Síraksbók 35 - Biblían (2007)

1Sá er lögmálið heldur færir ríkulega fórn,

2sá færir friðarfórn sem hlýðir boðorðunum.

3Að gjalda gott með góðu er eins og að færa matfórn,

4sá sem gerir góðverk færir þakkarfórn.

5Velþóknun Drottins hlýtur sá er heldur sig frá illu,

að forðast ranglæti er sem friðþæging.

6Kom ei tómhentur fram fyrir Drottin,

7að gera allt þetta er að hlýða boðorðum.

8Fórn réttláts manns auðgar altarið,

ilmur hennar berst Hinum hæsta.

9Fórn réttláts manns er Drottni þekk,

minning hennar mun ekki fyrnast.

10Ver örlátur er þú vegsamar Drottin,

sker ei frumgróðafórn þína við nögl.

11Fær allar gjafir hýr í bragði

og gjald tíund þína glaður í sinni.

12Gef Hinum hæsta eins og hann gaf þér,

örlátlega og eftir efnum þínum.

13Því að hann er Drottinn sem endurgeldur

og umbunar þér sjöfalt.

Um réttlæti Guðs

14Fær Drottni eigi mútur, hann þiggur þær ekki,

15reið þig eigi á fórnargjöf af ranglega fengnu.

Drottinn er sá sem dæmir,

engin hlutdrægni verður hjá honum fundin.

16Ekki hallar hann máli öreigans,

hann heyrir bæn þess sem beittur er rangsleitni.

17Hann daufheyrist hvorki við grátbeiðni föðurleysingjans

né ekkjunnar er hún úthellir bænarorðum.

18Renna eigi tár um vanga ekkjunnar,

19hrópa þau ekki gegn þeim er þeim ollu?

20Sá er þekkur Drottni sem þjónar honum,

bæn hans berst til skýjanna.

21Bæn auðmjúks manns fer skýjum ofar,

hann huggast eigi fyrr en hún nær marki

og hættir ekki að biðja fyrr en Hinn hæsti vitjar hans

22og kveður upp dóm og dæmir réttvíslega.

Drottni mun eigi heldur dveljast

eða láta þá bíða of lengi

uns hann brýtur bak miskunnarlausra,

23veitir heiðingjum réttláta refsingu,

afmáir alla hrokafulla

og brýtur veldissprota ranglátra,

24uns hann geldur mönnum gjörðir þeirra

og refsar þeim fyrir áform þeirra,

25uns hann rekur réttar lýðs síns

og gleður hann með miskunn sinni.

26Undursamleg er náð hans á neyðartímum,

eins og skúraský á þurrkatíð.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help