Jóhannesarguðspjall 2 - Biblían (2007)

Fyrsta táknið

1Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar.

2Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans.

3En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: „Þeir hafa ekki vín.“

4Jesús svarar: „Hvað viltu mér, kona? Minn tími er ekki enn kominn.“

5Móðir hans sagði þá við þjónana: „Allt það sem hann segir ykkur, það skuluð þið gera.“

6Nú voru þar sex vatnsker úr steini samkvæmt reglum Gyðinga um hreinsun og tók hvert þeirra tvo mæla eða þrjá.

7Jesús segir við þá: „Fyllið kerin vatni.“ Þeir fylltu þau á barma.

8Síðan segir hann: „Ausið nú af og færið veislustjóra.“ Þeir gerðu svo.

9Veislustjóri bragðaði vatnið, sem var orðið vín, og vissi ekki hvaðan það var en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það. Þá kallaði veislustjóri á brúðgumann

10og sagði: „Allir menn bera fyrst fram góða vínið og síðan hið lakara er menn gerast ölvaðir. Þú hefur geymt góða vínið þar til nú.“

11Þetta fyrsta tákn sitt gerði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði dýrð sína og lærisveinar hans trúðu á hann.

12Eftir þetta fór hann ofan til Kapernaúm ásamt móður sinni, bræðrum og lærisveinum. Þar voru þau nokkra daga.

Jesús, nýtt musteri

13Nú fóru páskar Gyðinga í hönd og Jesús hélt upp til Jerúsalem.

14Þar sá hann í helgidóminum þá er seldu naut, sauði og dúfur og víxlarana sem sátu þar.

15Þá gerði hann sér svipu úr köðlum og rak alla út úr helgidóminum, líka sauðina og nautin. Hann steypti niður peningum víxlaranna og hratt um borðum þeirra

16og við dúfnasalana sagði hann: „Burt með þetta héðan. Gerið ekki hús föður míns að sölubúð.“

17Lærisveinum hans kom í hug að ritað er: „Vandlæting vegna húss þíns mun tæra mig upp.“

18Ráðamenn Gyðinga sögðu þá við hann: „Hvaða tákn getur þú sýnt okkur um það að þú megir gera þetta?“

19Jesús svaraði þeim: „Brjótið þetta musteri og ég skal reisa það á þrem dögum.“

20Þá sögðu þeir: „Þetta musteri hefur verið fjörutíu og sex ár í smíðum og þú ætlar að reisa það á þrem dögum!“

21En Jesús var að tala um musteri líkama síns.

22Þegar hann var risinn upp frá dauðum minntust lærisveinar hans að hann hafði sagt þetta, og þeir trúðu ritningunni og orðinu sem Jesús hafði talað.

23Meðan hann var í Jerúsalem á páskahátíðinni fóru margir að trúa á hann því þeir sáu þau tákn sem hann gerði.

24En Jesús gaf þeim ekki trúnað sinn því hann þekkti alla.

25Hann þurfti þess ekki að neinn bæri öðrum manni vitni. Hann vissi sjálfur hvað í manni býr.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help