1Ég gat ekki, systkin, talað við ykkur eins og við andlega menn heldur eins og við menn sem sjá ekki nema sjálfa sig, eins og við ómálga börn í Kristi.
2Ég gaf ykkur mjólk að drekka, ekki fasta fæðu því að enn þolduð þið það ekki. Og þið þolið það jafnvel ekki enn
3því að enn þá lifið þið í sjálfshyggju. Það er metingur og deilur á milli ykkar. Sýnir það ekki að þið látið ekki andann leiða ykkur og hegðið ykkur eins og hverjir aðrir menn?
4Þegar einn segir: „Ég fylgi Páli,“ en annar: „Ég fylgi Apollós,“ eruð þið þá ekki eins og þið voruð áður?
5Hvað er þá Apollós? Já, hvað er þá Páll? Þjónar sem hafa leitt ykkur til trúar og það eins og Drottinn hefur gefið hvorum um sig.
6Ég gróðursetti, Apollós vökvaði en Guð gaf vöxtinn.
7Þannig skiptir það engu hver gróðursetur eða hver vökvar. Það er Guð sem skiptir máli, hann gefur vöxtinn.
8Sá sem gróðursetur og sá sem vökvar eru eitt. En sérhver mun fá laun eftir erfiði sínu.
9Því að samverkamenn Guðs erum við, Guðs akurlendi, Guðs hús eruð þið.
10Sem vitur byggingameistari hef ég lagt grundvöll eftir þeirri náð sem Guð hefur veitt mér en annar hefur byggt ofan á. En sérhver athugi hvernig hann byggir.
11Annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagður er, sem er Jesús Kristur.
12En ef einhver byggir ofan á grundvöllinn gull, silfur, dýra steina, tré, hey eða hálm,
13þá mun koma í ljós hvernig verk hvers og eins er. Dagurinn mun leiða það í ljós af því að hann opinberast með eldi og eldurinn mun prófa hvílíkt verk hvers og eins er.
14Ef það fær staðist sem einhver byggir ofan á mun hann fá laun.
15En brenni það upp mun hann bíða tjón. Sjálfur mun hann komast af en þó eins og úr eldi.
16Vitið þið eigi að þið eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í ykkur?
17Ef nokkur eyðir musteri Guðs mun Guð eyða honum því að musteri Guðs er heilagt og þið eruð það musteri.
18Enginn dragi sjálfan sig á tálar. Ef nokkur ykkar þykist vitur í þessum heimi verði hann fyrst heimskur til þess að hann verði vitur.
19Því að speki þessa heims er heimska í augum Guðs. Ritað er:
Hann er sá sem sér við klækjum hinna vitru.
20Og aftur:
Drottinn veit að hugsanir vitringanna eru fánýtar.
21Þess vegna stæri enginn sig af mönnum. Því að allt er ykkar
22hvort heldur er Páll, Apollós eða Kefas, heimurinn, líf eða dauði, hið yfirstandandi eða hið komandi, allt er ykkar.
23En þið eruð Krists og Kristur Guðs.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.