Opinberunarbókin 20 - Biblían (2007)

Árin þúsund

1Og ég sá engil stíga niður af himni. Hann hélt á lykli undirdjúpsins og stórum fjötri í hendi sér.

2Og hann tók drekann, þann gamla höggorm, sem er djöfull og Satan, og batt hann um þúsund ár.

3Hann kastaði honum í undirdjúpið, læsti því og setti innsigli yfir svo að hann leiddi ekki framar þjóðirnar afvega uns þúsund ár væru liðin. Eftir það á hann að vera leystur um stuttan tíma.

4Og ég sá hásæti og menn settust í þau og þeim sem þar sátu var gefið vald til að dæma. Ég sá sálir þeirra sem höfðu verið hálshöggnir af því að þeir höfðu vitnað um Jesú og flutt orð Guðs. Það voru þeir sem höfðu hvorki tilbeðið dýrið né líkneski þess og ekki fengið merki á enni sér og hönd. Og þeir lifnuðu og ríktu með Kristi um þúsund ár.

5Aðrir dauðir lifnuðu ekki fyrr en þúsund árin voru liðin. Þetta er fyrri upprisan.

6Sælir og heilagir eru þeir sem eiga hlut í fyrri upprisunni. Yfir þeim hefur hinn annar dauði ekki vald heldur munu þeir vera prestar Guðs og Krists og ríkja með honum um þúsund ár.

Satan sigraður

7Þegar þúsund árin eru liðin verður Satan leystur úr fangelsi sínu.

8Og hann mun fara og leiða þjóðirnar Góg og Magóg, á fjórum skautum jarðarinnar, afvega og safna þeim saman til stríðs og fjöldi þeirra er sem sandur sjávarins.

9Þær stigu upp á víðan völl jarðar og umkringdu herbúðir heilagra og borgina elskuðu. En eldur féll af himni ofan og eyddi þeim.

10Og djöflinum, sem leiðir þær afvega, var kastað í díkið elds og brennisteins, þar sem bæði dýrið og falsspámaðurinn eru. Þau verða kvalin dag og nótt um aldir alda.

Dómurinn

11Og ég sá mikið hvítt hásæti og þann sem í því sat. Frá augliti hans flúðu himinn og jörð en fundu engan stað.

12Og ég sá þá dauðu, stóra og smáa, standa frammi fyrir hásætinu og bókunum var lokið upp. Þá var annarri bókinni lokið upp, það var lífsins bók. Og hinir dauðu voru dæmdir eftir verkum sínum eins og ritað var í bókunum.

13Og hafið skilaði hinum dauðu sem í því voru og dauðinn og hel skiluðu þeim dauðu sem í þeim voru og sérhver hlaut dóm eftir verkum sínum.

14Og dauðanum og helju var kastað í eldsdíkið. Eldsdíki er hinn annar dauði.

15Og ef einhver fannst ekki skráður í lífsins bók var honum varpað í eldsdíkið.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help