Harmljóðin 4 - Biblían (2007)

Jerúsalem eftir fall borgarinnar

1Hversu blakkt er gullið orðið,

umbreyttur málmurinn dýri,

helgum steinum er sóað

á öllum gatnamótum.

2Dýrmætir synir Síonar

voru jafnvægir skíragulli,

nú eru þeir lagðir að jöfnu við leirker,

handaverk leirkerasmiðs.

3Jafnvel sjakalarnir bjóða júgrið

og gefa hvolpum sínum að sjúga

en dóttir þjóðar minnar er orðin harðbrjósta,

eins og strútarnir í eyðimörkinni.

4Tunga brjóstmylkingsins loðir

við góminn af þorsta,

börnin biðja um brauð

en enginn miðlar þeim neinu.

5Þeir sem áður neyttu krása

örmagnast nú á strætunum,

þeir sem uppaldir voru í purpura

hafast nú við á sorphaugum.

6Því að refsing þjóðar minnar var þyngri

en sú sem Sódóma hlaut

sem á augabragði var lögð í rúst

án þess að manna hendur kæmu þar nærri.

7Höfðingjar hennar voru hreinni en mjöll,

hvítari en mjólk,

líkami þeirra rauðari en kórallar,

þeir voru ásýndum sem safír.

8Nú er ásjóna þeirra svartari en sót,

þeir þekkjast ekki á strætunum.

Skinnið á þeim er skorpið að beinum,

það er þurrt eins og tré.

9Þeir sem féllu fyrir sverði voru sælli

þeim sem hungrið felldi

og vesluðust upp

af því að enginn var akurgróðinn.

10Hjartagóðar konur suðu eigin hendi

börnin sín,

þau urðu þeim til viðurværis

þegar þjóð minni var tortímt.

11Drottinn gaf heift sinni lausan tauminn,

úthellti ákafri reiði sinni,

kveikti eld í Síon

sem brenndi hana til grunna.

12Konungar jarðar hefðu ekki trúað því,

né neinn af íbúum veraldar,

að fjandmenn og óvinir gætu farið inn

um hlið Jerúsalem.

13Það var sökum synda spámanna hennar

og misgjörða presta hennar

sem úthelltu í borginni

blóði réttlátra.

14Eins og blindir menn reika þeir um strætin

svo ataðir blóði

að eigi mætti neinn snerta klæði þeirra.

15„Víkið úr vegi, hann er óhreinn,“ hrópuðu menn að þeim,

„víkið úr vegi, víkið úr vegi, snertið hann eigi!“

Þegar þeir flýja og flakka um er sagt meðal heiðingjanna:

„Hér skulu þeir eigi dveljast lengur.“

16Drottinn hefur sjálfur tvístrað þeim,

hann lítur eigi framar við þeim.

Prestar eru einskis virtir

og gamalmennum ekki miskunnað.

17Augu vor þreyttust af að stara sífellt

eftir hjálp sem ekki kom.

Af sjónarhól vorum mændum vér

eftir þjóð sem ekki hjálpar.

18Slóðir vorar voru raktar

svo að vér gátum ekki gengið eigin götur.

Það leið að lokum, dagar vorir taldir,

endalok vor komu.

19Ofsækjendur vorir voru léttfærari

en ernirnir í loftinu,

þeir eltu oss á fjöllunum,

sátu um oss í eyðimörkinni.

20Drottins smurði, lífsandi vor,

varð fanginn í gryfjum þeirra −

hann sem vér sögðum um: „Í skjóli hans

skulum vér lifa meðal þjóðanna.“

21Fagna þú og ver glöð, dóttirin Edóm,

þú sem býrð í Úslandi:

Til þín mun og bikarinn koma,

þú munt verða drukkin og afhjúpa nekt þína.

22Hegningin fyrir sekt þína er á enda, dóttirin Síon,

aldrei framar mun hann gera þig landræka.

Hann mun hegna þér fyrir misgjörðir þínar, dóttirin Edóm,

afhjúpa syndir þínar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help