Harmljóðin 3 - Biblían (2007)

Hegning, iðrun, von

1Ég er maðurinn sem hefur þjáðst undir reiðisvipu hans.

2Mig hefur hann hrakið burt,

út í myrkur og niðdimmu.

3Gegn mér snýr hann hendi sinni

án afláts allan daginn.

4Hann hefur tálgað af mér hold og hörund

og mulið bein mín.

5Beiskju og mæðu

hefur hann hlaðið upp í kringum mig,

6hneppt mig í myrkur

eins og þá sem dánir eru fyrir löngu.

7Hann hefur múrað mig inni svo að ég kemst ekki út,

lagt á mig þunga fjötra.

8Þótt ég hrópi og kalli á hjálp

hafnar hann bæn minni.

9Hann hefur lokað vegum mínum með höggnum steinum,

gert stigu mína torfæra.

10Hann sat um mig eins og björn um bráð,

eins og ljón í launsátri.

11Hann leiddi mig afvega og tætti mig sundur,

hann gerði út af við mig.

12Hann spennti boga sinn og stillti mér upp

sem skotmarki fyrir örina.

13Hann nísti nýru mín

með sonum örvamælis síns.

14Ég varð allri þjóð minni að athlægi,

hún syngur um mig háðkvæði liðlangan daginn.

15Hann mettaði mig beiskum jurtum,

gaf mér malurt að drekka,

16lét mig bryðja möl

og þrýsti mér í duftið.

17Þú hefur rænt mig friði,

ég veit ekki lengur hvað hamingja er

18og segi: „Allur þróttur er mér horfinn

og brostin von mín til Drottins.“

19Minnstu neyðar minnar og hrakninga,

malurtarinnar og eitursins.

20Sál mín hugsar sífellt um þetta

og er döpur í brjósti mér.

Miskunn Guðs varir

21En þetta vil ég hugfesta

og þess vegna vona ég:

22Náð Drottins er ekki þrotin,

miskunn hans ekki á enda,

23hún er ný á hverjum morgni,

mikil er trúfesti þín.

24Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín,

þess vegna vona ég á hann.

25Góður er Drottinn þeim er á hann vona

og þeim manni er til hans leitar.

26Gott er að bíða hljóður

eftir hjálp Drottins.

27Gott er fyrir manninn

að bera ok í æsku.

28Hann sitji einn og hljóður

þegar Drottinn hefur lagt það á hann.

29Hann liggi með munninn við jörðu,

vera má að enn sé von,

30hann bjóði þeim vangann sem slær hann,

láti metta sig smán.

31Því að ekki útskúfar Drottinn

um alla eilífð.

32Þótt hann valdi harmi, miskunnar hann

af mikilli náð sinni.

33Því að viljandi hrjáir hann ekki

né hrellir mannanna börn.

34Að troða undir fótum

alla bandingja landsins,

35að halla rétti manns

fyrir augliti Hins hæsta,

36að beita mann ranglæti í máli hans,

skyldi Drottinn ekki sjá það?

37Hver er sá sem bauð og það varð

án þess að Drottinn hafi ákveðið það?

38Gengur ekki fram af munni Hins hæsta

bæði gæfa og ógæfa?

39Hví skyldi nokkur lifandi maður kvarta

sem refsað er fyrir syndir sínar?

40Rannsökum breytni vora og prófum

og snúum aftur til Drottins.

41Fórnum hjarta og höndum

til Guðs í himninum.

42Vér höfum syndgað og verið óhlýðnir,

þú hefur ekki fyrirgefið,

43þú sveipaðir þig reiði, ofsóttir oss

og deyddir vægðarlaust.

44Þú sveipaðir þig skýi

svo að engin bæn kemst í gegn.

45Þú gerðir oss að skarni og sorpi

á meðal þjóðanna.

46Allir óvinir vorir

glenntu upp ginið.

47Geigur og gildra urðu hlutskipti vort,

eyðing og tortíming.

48Táralækir streyma af augum mér

því að þjóð minni er tortímt.

49Hvíldarlaust fljóta augu mín í tárum

án þess að hlé verði á,

50uns Drottinn lítur niður af himnum

og horfir á.

51Það sem auga mitt lítur kvelur mig

vegna allra dætra borgar minnar.

52Þeir sem voru óvinir mínir án tilefnis

hafa elt mig eins og fugl.

53Þeir reyndu að granda mér í gryfju

og köstuðu steinum á mig.

54Vatn flóði yfir höfuð mitt,

ég hugsaði: „Það er úti um mig.“

55Ég ákallaði nafn þitt, Drottinn,

úr djúpi gryfjunnar.

56Þú heyrðir hróp mitt: „Byrg ekki eyra þitt

fyrir ákalli mínu um hjálp.“

57Þú nálgaðist mig þegar ég hrópaði til þín,

sagðir: „Óttast ekki!“

58Þú varðir, Drottinn, málstað minn,

leystir líf mitt.

59Þú hefur, Drottinn, séð óréttinn sem ég er beittur,

rétt þú hlut minn.

60Þú hefur séð hefndarþorsta þeirra,

allt ráðabrugg þeirra gegn mér,

61þú hefur heyrt háðsyrði þeirra, Drottinn,

allt ráðabrugg þeirra gegn mér,

62sífellt hljóðskraf andstæðinga minna

og ráðagerðir þeirra gegn mér.

63Sjá þú, hvort sem þeir sitja eða standa

kveða þeir háðkvæði um mig.

64Endurgjald þeim, Drottinn,

eins og þeir hafa til unnið.

65Legg hulu yfir hjarta þeirra,

bölvan þín komi yfir þá.

66Ofsæktu þá í reiði og afmá þá

undan himni Drottins.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help