1Bræður mínir og systur. Ef einhver er staðinn að misgjörð þá leiðréttið þið, sem andleg eruð, þann mann með hógværð. Og hafið gát á sjálfum ykkur að þið freistist ekki líka.
2Berið hvert annars byrðar og uppfyllið þannig lögmál Krists.
3Sá sem þykist vera nokkuð en er þó ekkert blekkir sjálfan sig.
4En sérhver rannsaki breytni sjálfs sín og þá mun hann hafa hrósunarefni í samanburði við sjálfan sig en ekki í samanburði við aðra
5því að sérhver mun verða að bera sína byrði.
6Sá sem fær fræðslu um fagnaðarerindið veiti þeim sem uppfræðir hlutdeild með sér í öllum gæðum.
7Villist ekki. Guð lætur ekki að sér hæða. Það sem maður sáir, það mun hann og uppskera.
8Sá sem sáir í hold sjálfs sín mun af holdinu uppskera glötun en sá sem sáir í andann mun af andanum uppskera eilíft líf.
9Þreytumst ekki að gera það sem gott er því að á sínum tíma munum við uppskera ef við gefumst ekki upp.
10Þess vegna skulum við, meðan tími er til, gera öllum gott og einkum trúsystkinum okkar.
Lokaorð11Sjáið með hversu stórum stöfum ég skrifa ykkur með eigin hendi.
12Þeir sem eru að þröngva ykkur til að láta umskerast gera það til að sýnast, einungis til þess að þeir verði eigi ofsóttir vegna kross Krists.
13Því að ekki halda einu sinni sjálfir umskurnarmennirnir lögmálið heldur vilja þeir að þið látið umskerast til þess að þeir hafi eitthvað sýnilegt að stæra sig af.
14En það sé fjarri mér að hrósa mér af öðru en krossi Drottins vors Jesú Krists. Sakir hans er ég krossfestur heiminum og heimurinn mér.
15Umskurn eða yfirhúð skipta engu, heldur að vera ný sköpun.
16Og yfir öllum þeim sem fylgja þessari reglu sé friður og miskunn og yfir Ísrael Guðs.
17Enginn mæði mig héðan í frá því að ég ber merki Jesú á líkama mínum.
18Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með anda yðar, bræður mínir og systur. Amen.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.