Sakaría 2 - Biblían (2007)

Önnur sýn: Hornin fjögur

1Ég leit upp og sá fjögur horn.

2Og ég spurði engilinn, sem við mig talaði, og sagði: „Hvað er þetta?“ Hann svaraði: „Þetta eru hornin sem tvístruðu Júda, Ísrael og Jerúsalem.“

3Síðan sýndi Drottinn mér fjóra smiði.

4„Hvað ætlast þeir fyrir?“ spurði ég. Hann svaraði: „Þetta eru hornin sem tvístruðu Júda svo að enginn gat borið höfuðið hátt. En þeir eru komnir til að skelfa þau og höggva burt horn þeirra þjóða sem lyftu hornum sínum gegn Júdalandi til að tvístra því.“

Þriðja sýn: Maður með mælisnúru

5Ég leit upp og sá mann sem hélt á mælisnúru.

6Og ég spurði: „Hvert ert þú að fara?“ Hann svaraði: „Til Jerúsalem til þess að mæla hana og sjá hve löng hún er og breið.“

7Engillinn, viðmælandi minn, gekk þá fram og annar engill gekk á móti honum.

8Og við þann engil sagði hann: „Hlauptu til unga mannsins þarna og segðu við hann:

Engir borgarmúrar verða reistir um Jerúsalem.

Slíkur verður sá fjöldi manna og búfjár

sem þar mun dveljast.

9En ég sjálfur, segir Drottinn,

verð sem veggur úr eldi umhverfis hana

og innan hennar verð ég henni til dýrðar.“

Hvatning til útlaganna

10Burt, burt. Flýið úr Norðurlandinu,

segir Drottinn,

þótt ég hafi tvístrað yður

eins og fjórum höfuðvindum himinsins,

segir Drottinn.

11Burt, Síon. Forðaðu þér,

þú sem dvelst í Babýlon,

12því að svo segir Drottinn allsherjar

sem sendi mig í dýrð sinni

til þjóðanna sem hafa tekið yður herfangi:

Hver sá sem snertir við yður, snertir sjáaldur mitt,

13og þá mun ég hefja upp hönd mína gegn þeim

og þeir skulu verða þeim að herfangi

sem þeir sjálfir hnepptu í ánauð.

Þá verður yður ljóst

að Drottinn allsherjar hefur sent mig.

14Syngdu fagnaðarsöng, dóttirin Síon.

Sjá, ég kem

og mun dveljast með þér,

segir Drottinn.

15Á þeim degi munu margir heiðingjar ganga Drottni á hönd, gerast hans lýður og búa hjá þér. Þá muntu sjá að Drottinn allsherjar hefur sent mig til þín.

16Þá mun Drottinn veita Júda arfleifð hennar í Landinu helga og enn gera Jerúsalem að hinni kjörnu borg sinni.

17Allir dauðlegir menn veri hljóðir fyrir Drottni.

Hann er risinn upp frá sínum heilaga bústað.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help