Jónas 2 - Biblían (2007)

Jónas syngur þakkarsálm

1Drottinn sendi stóran fisk og lét hann gleypa Jónas og var Jónas í kviði fisksins í þrjá daga og þrjár nætur.

2Úr kviði fisksins bað hann til Drottins, Guðs síns:

3Í neyð minni kallaði ég til Drottins

og hann svaraði mér.

Úr djúpi heljar hrópaði ég á hjálp

og þú heyrðir hróp mitt.

4Þú varpaðir mér niður á hyldýpi á reginhafi,

straumþunginn umlukti mig,

allar bylgjur þínar og boðaföll gengu yfir mig.

5Þá hugsaði ég:

Ég er burt rekinn frá augum þínum.

Samt mun ég enn fá

að líta þitt heilaga musteri.

6Vötnin ætluðu að drekkja mér,

hyldýpið umlukti mig

og þangið vafðist mér um höfuð.

7Ég steig niður að rótum fjallanna

og slagbrandar jarðarinnar skullu aftur að baki mér að eilífu.

En þú leiddir mig lifandi upp úr glötunargröfinni,

Drottinn Guð minn.

8Er ég var að dauða kominn

minntist ég Drottins

og bæn mín kom fram fyrir þig

í þínu heilaga musteri.

9Þeir sem dýrka fánýta hjáguði

hafa brugðið trúnaði við Drottin.

10En ég vil færa þér fórn og syngja þér þakkarsálm.

Heitið, sem ég hef unnið, vil ég efna. Hjálpin er hjá Drottni.

11Þá bauð Drottinn fiskinum að spúa Jónasi upp á þurrt land.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help