1Þess vegna skulum við sleppa byrjendafræðslunni um Krist og snúa okkur að fræðslunni fyrir lengra komna. Við förum ekki að byrja aftur á undirstöðuatriðum eins og að trúa á Guð og hverfa frá breytni sem leiðir til dauða,
2kenningunni um skírnir og handayfirlagningar, upprisu dauðra og eilífan dóm.
3Og þetta munum við gera ef Guð lofar.
4Ef menn hafa eitt sinn verið upplýstir og notið hinnar himnesku gjafar, fengið hlutdeild í heilögum anda,
5reynt Guðs góða orð og fundið krafta komandi aldar
6en hafa síðan fallið frá, er ógerlegt að láta þá snúa við og iðrast. Þeir eru að krossfesta son Guðs að nýju og smána hann fyrir allra augum.
7Jörð sú er drukkið hefur í sig regnið, sem á hana fellur hvað eftir annað, og ber gróður til gagns fyrir þá sem yrkja hana, fær blessun frá Guði.
8En beri hún þyrna og þistla er hún ónýt. Yfir henni vofir bölvun og hennar bíður að lokum að verða brennd.
9En hvað ykkur snertir, þið elskuð, þá er ég sannfærður um að ykkur er betur farið og þið nær hjálpræðinu þó að ég mæli svo.
10Guð er ekki ranglátur. Hann gleymir ekki verki ykkar og kærleikanum sem þið auðsýnduð honum er þið þjónuðuð hinum heilögu sem þið þjónið enn.
11Ég óska að sérhvert ykkar sýni sömu ástundan allt til enda þar til von ykkar rætist.
12Gerist ekki sljó. Breytið heldur eftir þeim sem trúa og eru stöðuglynd og erfa það sem Guð hefur heitið.
Jesús opnaði okkur leið13Þegar Guð gaf Abraham fyrirheitið þá „sór hann við sjálfan sig“ þar sem hann hafði við engan æðri að sverja og sagði:
14„Sannlega mun ég ríkulega blessa þig og stórum margfalda kyn þitt.“
15Og Abraham öðlaðist það sem Guð hafði heitið honum er hann hafði beðið þess með stöðuglyndi.
16Menn sverja eið við þann sem æðri er, eiðurinn er þeim staðfesting og bindur enda á öll andmæli.
17Með því nú að Guð vildi sýna þeim sem fyrirheitið var ætlað enn skýrar hve ráð sitt væri óraskanlegt, þá ábyrgðist hann heit sitt með eiði.
18Það er óhugsandi að Guð fari með lygi og því er þetta tvennt sem er óraskanlegt mikil uppörvun fyrir okkur sem höfum leitað athvarfs í þeirri sælu von sem við eigum.
19Þessi von er eins og akkeri fyrir sálina, traust og öruggt, og nær alla leið inn fyrir fortjaldið
20þangað sem Jesús gekk inn og opnaði okkur leið þegar hann varð æðsti prestur að eilífu að hætti Melkísedeks.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.