1Þetta eru nöfn ættbálkanna:
Yst í norðri fær Dan einn hlut frá austri til vesturs, frá hafinu í áttina að Hetlón og til Lebó Hamat, og löndin sem heyra til Damaskus eru þar norðan við, næst Hamat.
2Frá austri til vesturs, með fram landi Dans, fær Asser einn hlut.
3Frá austri til vesturs, með fram landi Assers, fær Naftalí einn hlut.
4Frá austri til vesturs, með fram landi Naftalí, fær Manasse einn hlut.
5Frá austri til vesturs, með fram landi Manasse, fær Efraím einn hlut.
6Frá austri til vesturs, með fram landi Efraíms, fær Rúben einn hlut.
7Frá austri til vesturs, með fram landi Rúbens, fær Júda einn hlut.
8Frá austri til vesturs, með fram landi Júda, er landið sem þið eigið að fá Drottni í afgjald. Það er 25.000 álnir á breidd og nákvæmlega jafnlangt frá austri til vesturs og hinir hlutarnir. Helgidómurinn skal standa á því landi miðju.
9Landið, sem þið eigið að fá Drottni í afgjald, er 25.000 álnir á lengd og 20.000 á breidd.
10Hin heilaga landspilda er ætluð eftirtöldum til nytja:
Prestarnir skulu fá landspildu sem er 25.000 álnir á lengd norðan megin, 10.000 álnir á breidd vestan megin og 10.000 álnir á breidd að austanverðu og 25.000 álnir á lengd sunnan megin. Helgidómur Drottins á að standa í spildunni miðri.
11Hinir vígðu prestar skulu fá þetta land, þeir sem eru niðjar Sadóks. Þeir gegndu þjónustu sinni og villtust ekki frá mér, þegar Levítarnir villtust frá mér, eins og Ísraelsmenn.
12Það skal vera prestunum til afnota sem afgjald, hluti af afgjaldinu af landinu. Þessi spilda er háheilög og liggur að landi Levítanna.
13Levítarnir skulu fá jafnstóra landspildu og prestarnir, 25.000 álnir á lengd og 10.000 á breidd, í allt 25.000 álnir á lengd og 20.000 á breidd.
14Hvorki má selja neitt af því landi né láta í skiptum fyrir annað. Ekki má besti hluti landsins verða annarra eign því að hann er helgaður Drottni.
15Það land sem eftir er, 5000 álnir á breidd og 25.000 á lengd, er ekki heilagt land. Það skal nýtast borginni fyrir íbúðarhús og beitiland. Borgin á að standa í því miðju.
16Þetta er stærð hennar: 4500 álnir að norðanverðu og 4500 álnir að sunnanverðu, einnig 4500 álnir að austanverðu og 4500 álnir að vestanverðu.
17Beitiland borgarinnar skal ná yfir 250 álnir til norðurs, 250 álnir til suðurs, 250 álnir til austurs og 250 álnir til vesturs.
18Skákin sem eftir er með fram hinni heilögu spildu er 10.000 álnir í austur og 10.000 álnir í vestur. Afraksturinn af því landi á að vera verkamönnunum í borginni til matar.
19Verkamenn úr borginni, sem vinna á landspildunni, skulu vera úr öllum ættbálkum Ísraels.
20Allt afgjaldslandið á að vera 25.000 álnir sinnum 25.000 álnir. Þið eigið að láta af hendi allt þetta ferhyrnda landsvæði ásamt eignarlandi borgarinnar sem heilagt afgjald.
21Landshöfðinginn fær það land sem eftir er beggja vegna hins heilaga afgjaldslands og landareignar borgarinnar, með fram 25.000 álnum lands í austur að austurlandamærunum og með fram 25.000 álnum lands í vestur, að vesturlandamærunum. Báðar þessar landspildur, með fram hlutum ættbálkanna, skal landshöfðinginn fá. Spildan sem er heilagt afgjald og hús helgidómsins stendur á er í miðju landi landshöfðingjans.
22Eignarlönd Levítanna og borgarinnar eiga að vera mitt í því landi sem landshöfðinginn fær. Það sem landshöfðinginn fær er á milli landspildu Júda og lands Benjamíns. Það skal landshöfðinginn fá.
23Í hlut ættbálkanna sem eftir eru kemur: Benjamín fær einn hlut frá austurmörkunum til vesturmarkanna,
24Símeon fær einn hlut með fram landi Benjamíns frá austurmörkum til vesturmarka,
25Íssakar fær einn hlut með fram landi Símeons, frá austurmörkunum til vesturmarkanna,
26Sebúlon fær einn hlut með fram landi Íssakars, frá austurmörkum til vesturmarka,
27Gað fær einn hlut með fram landi Sebúlons, frá austurmörkum til vesturmarka.
28Með fram landi Gaðs liggja suðurmörkin í Suðurlandi frá Tamar að vötnunum við Meríba Kades og læknum sem rennur í hafið mikla.
29Þetta er landið sem þið eigið að skipta á milli ættbálka Ísraels með hlutkesti og þetta eru hlutir þeirra, hvers um sig, segir Drottinn Guð.
Borgin helga og hlið hennar30Þetta eru útgönguhlið borgarinnar að norðan en norðurhlið borgarinnar mælist 4500 álnir.
31Hlið borgarinnar bera nöfn ættbálka Ísraels. Þrjú hlið snúa í norður: eitt hlið Rúbens, eitt hlið Júda og eitt hlið Leví.
32Austurhlið borgarinnar mælist 4500 álnir og hefur þrjú hlið: eitt hlið Jósefs, eitt hlið Benjamíns og eitt hlið Dans.
33Suðurhliðin mælist 4500 álnir og hefur þrjú hlið: eitt hlið Símeons, eitt hlið Íssakars og eitt hlið Sebúlons.
34Vesturhliðin mælist 4500 álnir og hefur þrjú hlið: eitt hlið Gaðs, eitt hlið Assers og eitt hlið Naftalí.
35Ummál borgarinnar er 18.000 álnir. Héðan í frá ber borgin nafnið: Drottinn er hér.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.