Jobsbók 13 - Biblían (2007)

Marklaust tal vinanna

1Allt þetta sá ég með eigin augum

og heyrði með eigin eyrum og skildi,

2það sem þér vitið veit ég einnig

og stend yður ekki að baki.

3En ég ætla að tala við Hinn almáttka,

ég ætla að verja mál mitt frammi fyrir Guði.

4En þér hyljið sannleikann lygi

og eruð allir ónýtir læknar.

5Óskandi væri að þér þegðuð,

það mætti meta yður til visku.

6Hlýðið nú á vörn mína,

hlustið á rökin af vörum mínum.

7Ætlið þér að verja Guð með rangfærslum,

svara fyrir hann með lygi?

8Viljið þér taka málstað hans,

vera málsvarar Guðs?

9Getur farið vel er hann yfirheyrir yður

eða getið þér blekkt hann eins og maður blekkir mann?

10Hann mundi ávíta yður harðlega

væruð þér hlutdrægir á laun.

11Mun hátign hans ekki skelfa yður,

ótti við hann ekki yfirþyrma yður?

12Átölur yðar eru aska,

svör yðar leir.

13Þagnið nú því að ég ætla að tala

og komi svo yfir mig hvað sem verða vill.

14Ég stofna sjálfum mér í hættu

og legg líf mitt undir.

15Hann sviptir mig lífi, ég vænti einskis,

vil aðeins réttlæta breytni mína frammi fyrir honum.

16Það getur orðið mér til bjargar

því að enginn óguðlegur kemur fyrir auglit hans.

17Hlustið nú vel á ræðu mína,

leggið hlustir við málflutningi mínum.

18Nú legg ég mál mitt fyrir,

ég veit að ég hef á réttu að standa.

19Gæti nokkur ákært mig

vildi ég þagna og deyja.

20Hlífðu mér aðeins við þessu tvennu,

þá þyrfti ég ekki að dyljast fyrir þér:

21Léttu hendi þinni af mér

og óttinn við þig skelfi mig ekki.

22Kallaðu mig fyrir og ég mun svara

en ef ég tala svarar þú.

23Hve margar eru misgjörðir mínar og syndir?

Gerðu mér grein fyrir afbroti mínu og synd.

24Hvers vegna hylur þú auglit þitt

og lítur á mig sem óvin þinn?

25Ætlarðu að skelfa skrælnað laufblað,

ofsækja visinn reyr

26þar sem þú gerir mér bitra kosti

og lætur mig gjalda æskusynda minna?

27Þú leggur fætur mína í stokk,

gefur gætur að vegum mínum

og markar hvert fótspor mitt.

28Maðurinn grotnar eins og maðksmoginn viður,

eins og mölétin flík.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help