Postulasagan 22 - Biblían (2007)

1„Bræður og feður, hlustið á það sem ég ætla að flytja ykkur mér til varnar.“

2En er þeir heyrðu hann ávarpa sig á hebresku urðu þeir enn hljóðari. Hann heldur áfram:

3„Ég er Gyðingur, fæddur í Tarsus í Kilikíu en alinn upp í þessari borg. Við fætur Gamalíels hlaut ég fyllstu uppfræðslu í lögmáli feðra vorra. Guðs stríðsmaður vildi ég vera ekki síður en þið allir í dag.

4Ég ofsótti þá sem voru þessa vegar og þyrmdi ekki lífi þeirra, færði í fjötra og hneppti í fangelsi karla og konur.

5Æðsti presturinn og allt öldungaráðið geta borið mér vitni um þetta. Hjá þeim fékk ég bréf til bræðranna í Damaskus og fór þangað til að flytja einnig þá er þar voru í böndum til Jerúsalem að þeim yrði refsað.

6En á leiðinni, er ég nálgaðist Damaskus, bar svo við um hádegisbil að ljós mikið af himni leiftraði skyndilega um mig.

7Ég féll til jarðar og heyrði raust er sagði við mig: Sál, Sál, hví ofsækir þú mig?

8Ég svaraði: Hver ert þú, Drottinn? Og hann sagði við mig: Ég er Jesús frá Nasaret sem þú ofsækir.

9Fylgdarmenn mínir sáu ljósið en raust þess er við mig talaði heyrðu þeir ekki.

10Þá sagði ég: Hvað á ég að gera, herra? En Drottinn sagði við mig: Rís upp og far til Damaskus. Þar mun þér verða sagt allt sem þér er ætlað að gera.

11En með því að ég var blindaður af ljóma þessa ljóss urðu förunautar mínir að leiða mig og þannig komst ég til Damaskus.

12En Ananías nokkur, maður guðrækinn eftir lögmálinu og í góðum metum hjá öllum Gyðingum er þar bjuggu,

13kom til mín, nam staðar hjá mér og sagði: Sál, bróðir, fá þú aftur sjón þína! Á sömu stundu fékk ég sjónina og sá hann.

14En hann sagði: Guð forfeðra vorra hefur útvalið þig til að þekkja vilja sinn, að sjá Hinn réttláta og heyra það sem hann segir.

15Því að þú skalt vera vottur hans og segja öllum mönnum frá því sem þú hefur séð og heyrt.

16Hvað dvelur þig nú? Rís upp, ákalla nafn hans og lát skírast og laugast af syndum þínum.

17En þegar ég var kominn aftur til Jerúsalem og baðst fyrir í helgidóminum varð ég frá mér numinn

18og sá Drottin og hann sagði við mig: Flýt þér og far sem skjótast burt úr Jerúsalem því að menn hér munu ekki veita viðtöku vitnisburði þínum um mig.

19Ég sagði: Drottinn, þeir vita að ég hef verið að hneppa í fangelsi þá sem trúðu á þig og láta húðstrýkja þá í samkunduhúsunum.

20Og þegar úthellt var blóði Stefáns, vottar þíns, stóð ég sjálfur þar hjá og lét mér vel líka og gætti klæða þeirra sem tóku hann af lífi.

21Hann sagði við mig: Far þú, því að ég mun senda þig til heiðingja langt í burtu.“

Í höndum hermanna

22Allt að þessu orði hlýddu menn á hann en nú hófu þeir upp raust sína og hrópuðu: „Burt með slíkan mann af jörðinni! Eigi hæfir að hann lifi!“

23Nú sem þeir æptu og vingsuðu klæðum sínum og þyrluðu ryki í loft upp

24skipaði hersveitarforinginn að fara með hann inn í kastalann, hýða hann og kúga hann með því til sagna svo að hann kæmist að því fyrir hverja sök þeir gerðu slík óp að honum.

25En þá er þeir strengdu hann undir höggin sagði Páll við hundraðshöfðingjann er hjá stóð: „Leyfist ykkur að húðstrýkja rómverskan mann og það án dóms og laga?“

26Þegar hundraðshöfðinginn heyrði þetta fór hann til hersveitarforingjans, skýrði honum frá og sagði: „Hvað ert þú að gera? Maður þessi er rómverskur.“

27Hersveitarforinginn kom þá og sagði við Pál: „Seg mér, ert þú rómverskur borgari?“

Páll sagði: „Já.“

28Hersveitarforinginn sagði: „Fyrir ærið fé keypti ég þennan þegnrétt.“

En Páll sagði: „Ég er meira að segja með honum fæddur.“

29Þeir sem áttu að kúga hann til sagna viku nú jafnskjótt frá honum. Og hersveitarforinginn varð hræddur er hann varð þess vís að það var rómverskur maður sem hann hafði látið binda.

Páll fyrir ráðinu

30Daginn eftir vildi hann ganga úr skugga um fyrir hvað Gyðingar kærðu hann, lét leysa hann og bauð að æðstu prestarnir og allt ráðið kæmi saman. Síðan kom hann ofan með Pál og leiddi hann fram fyrir þá.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help