1Salómon, sonur Davíðs, reyndist máttugur í konungdómi sínum. Drottinn, Guð hans, var með honum og gerði hann mjög voldugan.
2Salómon gaf öllum Ísrael fyrirmæli, foringjum þúsund og hundrað manna liða og höfðingjum alls Ísraels og höfðingjum ættanna.
3Því næst hélt Salómon og allur söfnuðurinn með honum til fórnarhæðarinnar í Gíbeon því að þar var opinberunartjald Guðs sem Móse, þjónn Drottins, hafði gert í eyðimörkinni.
4Davíð hafði flutt örk Guðs frá Kirjat Jearím á þann stað sem hann hafði búið henni. Hann hafði látið reisa tjald fyrir hana í Jerúsalem.
5Eiraltarið, sem Besaleel Úríson, Húrssonar, hafði gert, stóð þar frammi fyrir bústað Drottins og Salómon og söfnuðurinn leituðu þar úrskurðar Drottins.
6Salómon steig upp að eiraltarinu sem var frammi fyrir Drottni við opinberunartjaldið og færði á því þúsund brennifórnir.
7Þessa nótt birtist Drottinn Salómon og sagði: „Segðu hvað þú vilt að ég gefi þér.“
8Salómon svaraði Guði: „Þú hefur sýnt Davíð, föður mínum, mikla náð og gert mig að konungi í hans stað.
9Drottinn Guð, uppfylltu nú heitið sem þú gafst Davíð, föður mínum, þar sem þú hefur gert mig að konungi yfir þjóð sem er jafnfjölmenn og rykkorn jarðar eru mörg.
10Gef mér nú visku og þekkingu svo að ég viti hvernig ég á að koma fram við þessa þjóð. Því að hver gæti annars stjórnað þessari voldugu þjóð þinni?“
11Guð svaraði Salómon: „Vegna þess að þetta er þér efst í huga og þú baðst ekki um auð, eignir, vegsemd eða dauða fjandmanna þinna heldur um visku og þekkingu til þess að geta stjórnað þjóð minni, sem ég hef gert þig að konungi yfir,
12verður þér gefin viska og þekking. En ég gef þér einnig auð, eignir og vegsemd, meiri en nokkur konungur hefur átt á undan þér eða nokkur mun eignast eftir þig.“
13Því næst hélt Salómon frá fórnarhæðinni í Gíbeon, frá opinberunartjaldinu og til Jerúsalem og settist að völdum í Ísrael.
Auðæfi Salómons14Salómon kom sér upp hervögnum og mannaði þá. Hafði hann fjórtán hundruð vagna og tólf þúsund vagnliða. Hann kom þeim fyrir í vagnliðsborgum og í Jerúsalem hjá konungi.
15Konungur notaði silfur og gull eins og grjót í Jerúsalem og sedrusvið eins og mórberjafíkjuviðinn sem vex á láglendinu.
16Hestar Salómons voru frá Egyptalandi og Kóe. Kaupmenn konungs keyptu þá í Kóe.
17Vagn, sem fluttur var inn frá Egyptalandi, kostaði sex hundruð sikla silfurs og hver hestur hundrað og fimmtíu sikla. Síðan voru þeir seldir áfram til allra konunga Hetíta og konunga Arams.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.