1Þetta eru synir Davíðs sem fæddust honum í Hebron: Ammón, frumburðurinn sem hann átti með Akínóam frá Jesreel, annar var Daníel, með Abígail frá Karmel,
2þriðji Absalon, sonur Maöku, dóttur Talmaí, konungs í Gesúr, fjórði Adónía, sonur Haggítar,
3fimmti Sefatja, með Abítal, sjötti Jitream, með Eglu, konu sinni.
4Honum fæddust sex synir í Hebron þar sem hann var konungur sjö ár og sex mánuði. Hann var konungur í Jerúsalem þrjátíu og þrjú ár
5og þetta eru synirnir sem fæddust honum í Jerúsalem: Símea og Sóbab og Natan og Salómon. Þessa fjóra átti hann með Batsúu Ammíelsdóttur.
6Og hann eignaðist enn fremur Jíbhar og Elísama og Elífelet
7og Nóga og Nefeg og Jafía
8og Elísama og Eljada og Elífelet, alls níu.
9Þetta voru allir synir Davíðs nema synir hjákvennanna og Tamar var systir þeirra.
10Og sonur Salómons var Rehabeam, sonur hans var Abía, sonur hans Asa, sonur hans Jósafat,
11sonur hans Jóram, sonur hans Ahasía, sonur hans Jóas,
12sonur hans Amasía, sonur hans Asaría, sonur hans Jótam,
13sonur hans Akas, sonur hans Hiskía, sonur hans Manasse,
14sonur hans Amón og sonur hans Jósía.
15Og synir Jósía voru Jóhanan, frumburðurinn, annar Jójakím, þriðji Sedekía, fjórði Sallúm.
16Og synir Jójakíms voru Jekonja, sonur hans, og Sedekía, sonur hans.
17Og synir Jekonja, sem fluttur var í útlegð, voru Sealtíel,
18Malkíram, Pedaja, Seneasser, Jekamja, Hósama og Nedabja.
19Og synir Pedaja voru Serúbabel og Símeí. Og synir Serúbabels voru Mesúllam og Hananja og Selómúí var systir þeirra.
20Synir Mesúllams voru Hasúba og Óhel og Berekía og Hasadja og Júsab Hesed, alls fimm.
21Og synir Hananja voru Pelatja og Jesaja og Refaja og Arnan og Óbadja og Sekanja.
22Og synir Sekanja voru Semaja og Hattúa og Jígeal og Baría og Nearja og Safat, alls sex.
23Og synir Nearja voru Eljóenaí og Hiskía og Asríkam, alls þrír.
24Og synir Eljóenaí voru Hódavja og Eljasíb og Pelaja og Akkúb og Jóhanan og Delaja og Ananí, alls sjö.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.