Dómarabókin 16 - Biblían (2007)

1Eitt sinn fór Samson til Gasa. Þar sá hann skækju og gekk inn til hennar.

2Þá var Gasabúum sagt: „Samson er kominn hingað.“ Og þeir umkringdu hann og gerðu honum fyrirsát alla nóttina í borgarhliðinu en höfðu þó hljótt um sig alla nóttina því að þeir hugðust drepa hann þegar birti af degi.

3Samson svaf til miðnættis en um miðja nótt reis hann á fætur, þreif hurðirnar á borgarhliðinu ásamt báðum dyrastöfunum, kippti þeim upp ásamt slagbrandinum og lagði á herðar sér og bar þær efst upp á fjallið sem er gegnt Hebron.

Samson og Dalíla

4Eftir þetta bar svo við að Samson felldi ástarhug til konu einnar í Sórekdal. Hún hét Dalíla.

5Höfðingjar Filistea komu til hennar og sögðu við hana: „Ginntu hann og komstu að því í hverju hinir miklu kraftar hans eru fólgnir og með hvaða ráðum við getum yfirbugað hann svo að við náum að binda hann og þjá. Við munum hver um sig gefa þér þúsund sikla silfurs og hundraði betur.“

6Dalíla sagði þá við Samson: „Segðu mér í hverju hinir miklu kraftar þínir eru fólgnir og með hverju þú verður bundinn svo að menn fái ráðið við þig.“

7Samson svaraði henni: „Ef menn binda mig með sjö nýjum þvengjum, sem ekki eru enn orðnir þurrir, verð ég linur og eins og hver annar maður.“

8Þá færðu höfðingjar Filistea henni sjö nýja þvengi sem ekki voru þornaðir og hún batt hann með þeim.

9En mennina, sem um hann sátu, hafði hún hjá sér í svefnhúsinu. Því næst sagði hún við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Þá sleit hann sundur strengina eins og hörþráður hrekkur sundur þegar eldur er nærri og ekki varð komist fyrir afl hans.

10Þá sagði Dalíla við Samson: „Þú hefur blekkt mig og logið að mér. Segðu mér nú með hverju þú verður bundinn.“

11Hann svaraði: „Ef menn binda mig með nýjum reipum, sem ekki hafa verið höfð til neinnar vinnu, verð ég linur og eins og hver annar maður.“

12Þá tók Dalíla ný reipi, batt hann með þeim og sagði við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Og mennirnir, sem um hann sátu, voru í svefnhúsinu. En hann sleit þau af armleggjum sér sem þræðir væru.

13Og Dalíla sagði við Samson: „Enn hefurðu blekkt mig og logið að mér. Segðu mér með hverju þú verður bundinn.“ Og hann sagði við hana: „Ef þú vefur hárlokkana sjö á höfði mér saman við uppistöðuna í vef og festir með nagla verð ég linur og eins og hver annar maður.“

14Meðan hann svaf tók Dalíla hárlokkana sjö á höfði hans, óf þá saman við uppistöðuna og festi þá við vegginn með nagla og sagði við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Þá vaknaði hann af svefninum og kippti út vefjarnaglanum og uppistöðunni.

15Þá sagði hún við hann: „Hvernig getur þú sagt: Ég elska þig, ef þú ert ekki einlægur við mig? Þrisvar hefur þú nú blekkt mig og ekki sagt mér í hverju hið mikla afl þitt er fólgið.“

16Hún nauðaði í honum alla daga með orðum sínum og lagði svo fast að honum að hann varð dauðleiður á því

17og sagði henni allan hug sinn og mælti: „Aldrei hefur rakhnífur komið á höfuð mitt því að ég var helgaður Guði frá móðurlífi. Væri hár mitt skorið hyrfu kraftar mínir og ég yrði linur og eins og allir aðrir menn.“

18Þegar Dalíla sá að hann hafði trúað henni fyrir öllu sendi hún eftir höfðingjum Filistea og lét segja þeim: „Nú skuluð þið koma því að hann hefur trúað mér fyrir öllu.“ Þá fóru höfðingjar Filistea til hennar og höfðu silfrið með sér.

19Hún svæfði hann í kjöltu sinni, kallaði á mann og lét hann skera hárlokkana sjö af höfði hans. Þannig veikti hún hann og afl hans var horfið frá honum.

20Þá sagði hún: „Filistear hafi þig, Samson.“ Hann vaknaði af svefninum og hugsaði: „Ég slepp í þetta sinn sem hin fyrri og slít mig lausan.“ En hann vissi ekki að Drottinn var vikinn frá honum.

21Filistear tóku hann höndum, stungu úr honum augun og fóru með hann niður til Gasa. Þeir færðu hann í eirfjötra og varð hann að draga kvörn í dýflissunni.

22En höfuðhár hans tók aftur að vaxa eftir að það hafði verið skorið.

Samson deyr

23Nú söfnuðust höfðingjar Filistea saman til þess að færa Dagón, guði sínum, fórn mikla og gera sér glaðan dag enda sögðu þeir: „Guð okkar hefur selt óvininn Samson okkur í hendur.“

24Þegar menn sáu hann vegsömuðu þeir guð sinn og sögðu: „Guð okkar hefur gefið í okkar hendur fjandmanninn sem eytt hefur land okkar og drepið marga af okkar mönnum.“

25En er þeir gerðust glaðir sögðu þeir: „Látið sækja Samson til þess að skemmta okkur.“ Létu þeir nú sækja Samson úr dýflissunni og varð hann að skemmta þeim en þeir höfðu sett hann milli súlnanna.

26Þá sagði Samson við sveininn sem leiddi hann: „Slepptu mér og leyfðu mér að þreifa á súlunum sem húsið hvílir á svo að ég geti stutt mig við þær.“

27Húsið var fullt af körlum og konum. Þar voru og allir höfðingjar Filistea og uppi á þakinu voru um þrjú þúsund karlar og konur sem horfðu á meðan Samson skemmti.

28Þá hrópaði Samson til Drottins og sagði: „Drottinn Guð, minnstu mín. Styrktu mig nú, Guð, í þetta eina sinn svo að ég geti hefnt mín á Filisteum fyrir bæði augu mín í einu.“

29Því næst þreif Samson í báðar miðsúlurnar, sem húsið hvíldi á, hægri hendinni í aðra og vinstri hendinni í hina og þrýsti á.

30Þá mælti Samson: „Deyi ég nú með Filisteum.“ Síðan lagðist hann á af öllu afli svo að húsið féll niður á höfðingjana og allt fólkið sem í því var. Þeir sem hann drap um leið og hann beið sjálfur bana voru fleiri en þeir er hann hafði drepið um ævina.

31Bræður hans komu og allt ættfólk hans, tóku hann og fóru með hann þaðan og jörðuðu hann milli Sorea og Estaól í gröf Manóa föður hans. En hann hafði verið dómari í Ísrael í tuttugu ár.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help