Fyrri kroníkubók 1 - Biblían (2007)

Niðjatal Adams

1Adam, Set, Enos,

2Kenan, Mahalalel, Jared,

3Henok, Metúsala, Lamek,

4Nói, Sem, Kam og Jafet.

5Synir Jafets voru Gómer og Magóg og Madaí og Javan og Túbal og Mesek og Tíras.

6Synir Gómers voru Askenas og Rífat og Tógarma.

7Synir Javans voru Elísa og Tarsis, Kittar og Ródanítar.

8Synir Kams voru Kús og Mísraím, Pút og Kanaan.

9Synir Kúss voru Seba og Havíla og Sabta og Raema og Sabteka. Og synir Raema voru Séba og Dedan.

10Og Kús gat Nimrod. Hann varð fyrsta hetjan á jörðinni.

11Og Mísraím gat Lúdíta og Anamíta og Lehabíta og Naftúbíta,

12og Patrúsíta og Kaslúkíta, sem Filistear eru komnir af, enn fremur Kaftóríta.

13Og Kanaan gat Sídon, frumburð sinn, og Het

14og Jebúsíta og Amoríta og Gírgasíta

15og Hevíta og Arkíta og Síníta

16og Arvadíta og Semaríta og Hamatíta.

17Synir Sems voru Elam og Assúr og Arpaksad og Lúd og Aram og Ús og Húl og Geter og Mas.

18Arpaksad gat Sela og Sela gat Eber

19og Eber fæddust tveir synir. Annar hét Peleg, því að á hans dögum var jörðinni skipt, en bróðir hans hét Joktan.

20Og Joktan gat Almódad og Selef og Hasarmavet og Jera

21og Hadóram og Úsal og Dikla

22og Ebal og Abímael og Séba

23og Ófír og Havíla og Jóbab. Allir þessir menn voru synir Joktans.

24Sem, Arpaksad, Selam,

25Eber, Peleg, Reú,

26Serúg, Nahor, Terak,

27Abram, það er Abraham.

Niðjatal Abrahams

28Synir Abrahams voru Ísak og Ísmael.

29Þetta er niðjatal þeirra: Nebajót var frumburður Ísmaels, þá Kedar og Adbeel og Míbsam

30og Misma og Dúma og Massa og Hadad og Tema

31og Jetúr og Nafis og Kedma. Þeir voru synir Ísmaels.

32Þetta eru synir Ketúru, hjákonu Abrahams. Hún ól Símran og Joksan og Medan og Midían og Jísbak og Súa. Og synir Joksans voru Séba og Dedan

33og synir Midíans: Efa og Efer og Hanok og Abída og Eldaa. Allir þessir menn voru synir Ketúru.

34Og Abraham gat Ísak. Synir Ísaks voru Esaú og Ísrael.

35Synir Esaú voru Elífas, Regúel og Jehús og Jaelam og Kóra.

36Synir Elífasar voru Teman og Ómar, Sefí og Gaetam, Kenas og Timna og Amalek.

37Synir Regúels voru Nahat, Sera, Samma og Missa.

38Og synir Seírs voru Lótan og Sóbal og Síbeon og Ana og Díson og Eser og Dísan.

39Og synir Lótans voru Hóri og Hómam og systir Lótans var Timna.

40Synir Sóbals voru Aljan og Manahat og Ebal, Sefí og Ónam. Og synir Síbeons voru Aja og Ana.

41Sonur Ana var Díson. Og synir Dísons voru Hamran og Esban og Jítran og Keran.

42Synir Esers voru Bilhan og Saavan og Jaakan. Synir Dísons voru Ús og Aran.

Konungar og höfðingjar í Edóm

43Og þetta eru konungarnir sem ríktu í landi Edóms áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum: Bela Beórsson. Borg hans hét Dínhaba.

44Þegar Bela dó varð Jóbab Serason frá Borsa konungur eftir hann.

45Þegar Jóbab dó varð Húsam frá landi Temaníta konungur eftir hann.

46Þegar Húsam dó varð Hadad Bedadsson konungur eftir hann. Hann sigraði Midíaníta á Móabsvöllum. Borg hans hét Avít.

47Þegar Hadad dó varð Samla frá Masreka konungur eftir hann.

48Þegar Samla dó varð Sál frá Rehóbót við fljótið konungur eftir hann.

49Þegar Sál dó varð Baal Hanan Akborsson konungur eftir hann.

50Þegar Baal Hanan dó varð Hadad konungur eftir hann. Borg hans hét Pagí. Kona hans hét Mehetabeel, dóttir Matredar, dóttur Mesahabs.

51Þegar Hadad dó tóku ættarhöfðingjar völdin í Edóm: höfðingjarnir frá Timma, Alva, Jetet,

52Oholíbama, Ela, Pínon,

53Kenas, Teman, Mibsar,

54Magdíel og Íram. Þetta voru ættarhöfðingjar Edómíta.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help