Fyrri kroníkubók 4 - Biblían (2007)

Ættbálkur Júda

1Synir Júda voru Peres, Hesrón og Karmí og Húr og Sóbal.

2Og Reaja, sonur Sóbals, gat Jahat og Jahat gat Ahúmaí og Lahad. Þetta eru ættir Sóreatíta.

3Og þetta voru synir Etams: Jesreel og Jisma og Jídbas og Haselelpóní var systir þeirra.

4Og Penúel var faðir Gedórs og Eser faðir Húsa. Þetta voru synir Húrs, frumburðar Efrata, föður Betlehems.

5Og Ashúr, faðir Tekóa, átti tvær konur, Heleu og Naeru.

6Og Naera ól honum Ahússam og Hefer og Temní og Ahastaríta. Þeir voru synir Naeru.

7Synir Heleu voru Seret, Jísehar og Etnan.

8Og Kós gat Anúb og Sóbeba og ættir Aharhels, sonar Harúms.

9Og Jaebes var í mestum metum af bræðrum sínum. Móðir hans nefndi hann Jaebes því að hún sagði: „Ég ól hann með kvölum.“

10En Jaebes hrópaði til Guðs Ísraels og sagði: „Blessaðu mig. Auktu við land mitt. Hönd þín sé með mér og bægðu frá mér böli svo að ég þurfi ekki að líða kvalir.“ Guð veitti honum það sem hann bað um.

11Og Kelúb, bróðir Súha, gat Mehír. Hann var faðir Estóns

12og Estón gat Bet Rafa og Pasea og Tehinna, föður Nahasar. Þetta eru mennirnir frá Reka.

13Og synir Kenasar voru Otníel og Seraja. Og synir Otníels voru Hatat og Meontaí.

14Og Meontaí gat Ofra. Og Seraja gat Jóab, föður Ge Harasíms því að þeir voru smiðir.

15Og synir Kalebs Jefúnnesonar voru Ír og Ela og Naam. Og sonur Ela var Kenas.

16Og synir Jehaleels voru Síf og Sífa og Tirja og Asareel.

17Og synir Esra voru Jeter og Mered og Efer og Jalon. Jeter gat Mirjam og Sammaí og Jísba, föður Estemóa.

18Og Mered átti tvær konur, aðra frá Egyptalandi, hina frá Júda. Og egypska konan ól honum Jered, föður Gedors, og Heber, föður Sókó, og Jekútíel, föður Sanóa. Þetta voru synir Bitju, dóttur faraós, sem Mered hafði tekið sér fyrir konu,

19og synir hans með konu sinni frá Júda, systur Nahams, föður Kegílu, voru Garmíti og Maakíti Estemóa.

20Og synir Símonar voru Amnon og Rinna, Ben Hanan og Tílon. Og synir Jíseí voru Sóhet og Ben Sóhet.

21Synir Sela, sonar Júda, voru Er, faðir Leka, og Laeda, faðir Maresa, og ættir línvefaranna í vefstofunni í Asbea,

22einnig Jókím og mennirnir frá Kóseba og Jóas og Saraf sem höfðu farið með völd í Móab en sneru aftur til Betlehem eins og segir í gömlum frásögnum.

23Þeir voru leirkerasmiðir og bjuggu í Netaím og Gedera. Þeir unnu fyrir konunginn og bjuggu hjá honum.

Ættbálkur Símeons

24Synir Símeons voru Nemúel og Jamín og Jaríb og Sera og Sál.

25Sonur hans var Sallúm, sonur hans Mibsam og sonur hans Misma.

26Og synir Misma voru Hammúel, sonur hans, Sakkúr, sonur hans og Símeí, sonur hans.

27Símeí átti sextán syni og sex dætur. En bræður hans voru ekki barnmargir og allar ættir þeirra voru ekki jafnfjölmennar og Júdamenn.

28Þeir bjuggu í Beerseba og Mólada og Hasar Súal

29og Bílha og Esem og Tólad

30og Betúel og Harma og Siklag

31og Bet Markabót og Hasar Súsím og Bet Bíreí og Saaraím. Þetta voru borgir þeirra þar til Davíð varð konungur

32og þorp þeirra voru Etam og Aín, Rimmon og Tóken og Asan, fimm borgir

33og öll þau þorp, sem voru umhverfis, allt til Baal. Á þessum stöðum bjuggu þeir og þeir skráðu sína eigin ættartölu.

34Og Mesóbab og Jamlek og Jósa Amasjason

35og Jóel og Jehú Jósibjason, Serajasonar, Asíelssonar

36og Eljóenaí og Jaakóba og Jesóhaja og Asaja og Adíel og Jesímíel og Benaja

37og Sísa Sífeíson, Allonssonar, Jedajasonar, Simrísonar, Semajasonar.

38Þeir sem hér voru nefndir voru höfðingjar í ættum sínum og urðu ættir þeirra mjög fjölmennar.

39Þeir héldu því þaðan í áttina til Gedór, alveg austur fyrir dalinn, til að leita haglendis fyrir fénað sinn.

40Og þeir fundu grösugt og gott haglendi og landrými var þar mikið. Þar var kyrrt og friðsælt því að þar höfðu niðjar Kams búið áður.

41Á dögum Hiskía, konungs í Júda, komu þeir sem hér voru nefndir, eyddu tjöldum þeirra og drápu Meúníta sem þar voru fyrir og helguðu þá banni. Þeir hafa búið þar síðan því að þar var haglendi fyrir fénað þeirra.

42Og fimm hundruð af niðjum Símeons fóru til Seírfjalla og fóru fyrir þeim Pelatja og Nearja og Refaja og Ússíel, synir Jíseí.

43Þeir drápu síðustu leifar Amalekíta og þar hafa þeir búið allt til þessa dags.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help