Speki Salómons 8 - Biblían (2007)

1Hún er voldug og nær heimsenda á milli

og skipar öllu haganlega.

Salómon fékk ást á spekinni

2Ég fékk ást á henni og leitaði hennar frá æsku.

Ég kostaði kapps um að leiða hana heim sem brúði

og varð hugfanginn af fegurð hennar.

3Samlíf við Guð veitir ættgöfgi hennar ljóma

og Drottinn alls elskar hana.

4Hún er innvígð í leynda vitund Guðs

og tekur þátt í verkum hans.

5Sé auður æskilegt hnoss í lífinu,

hvað er þá dýrmætara en spekin sem kemur öllu til leiðar?

6Fái hyggindi nokkru áorkað,

hver í heimi tekur þá snilli hennar fram?

7Ef einhver elskar réttvísi

þá spretta mannkostir af erfiði hennar.

Hún kennir hófsemi og hyggindi,

réttlæti og hugprýði

en ekkert er mönnum gagnlegra í lífinu.

8Ef einhver girnist mikla þekkingu

þá veit hún það sem liðið er og ræður í hið ókomna.

Hún ber skyn á hið fornkveðna og leysir gátur.

Tákn og undur veit hún fyrir

og endalok tíða og tíma.

9Ég einsetti mér því að leiða hana heim sem lífsförunaut

því að ég vissi að hún mundi reynast mér ráðholl

og veita mér uppörvun í áhyggjum og sorg.

10Hún mun afla mér hróss meðal manna

og ungur að árum nýt ég heiðurs hjá öldnum.

11Ég mun reynast skarpvitur í dómum

og verða dásamaður af höfðingjum.

12Þegi ég munu menn bíða þess að ég tali og gefa gaum að þegar ég tala.

Haldi ég áfram að tala

hafa þeir hljótt um sig.

13Sakir hennar mun ég ódauðleik hljóta

og láta niðjum eftir ævarandi orðstír.

14Lýðum mun ég stjórna og þjóðir munu mér lúta.

15Grimmir harðstjórar munu skelfast er þeir heyra mín getið

en af alþýðu mun ég mildur þykja en hraustur bardagamaður.

16Heimkominn nýt ég hvíldar hjá henni

því að engin beiskja er í sambúð við hana

né nein kvöl í samlífi við hana

heldur aðeins yndi og ánægja.

17Um þetta hugsaði ég með sjálfum mér

og íhugaði í hjarta mínu

að ódauðleiki felst í venslum við spekina

18og unaðsleg hamingja í vináttu hennar.

Óþrjótandi auður fæst af iðju hennar

og hyggindi af því að eiga sálufélag við hana.

Frægð veitir að gefa sig að orðum hennar.

Þá lagði ég af stað til að hreppa hana.

19Ég var ungur efnispiltur

og hafði hlotið góða sál,

20eða öllu heldur: Ég var góður og því öðlaðist ég flekklausan líkama.

21En ég vissi að ég næði ekki tökum á spekinni nema Guð gæfi mér hana

og það eru hyggindi fyrir sig að vita frá hverjum gjöfin kemur.

Því sneri ég mér til Drottins og ákallaði hann

og mælti af einlægu hjarta:

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help