Orðskviðirnir 28 - Biblían (2007)

1Hinir ranglátu flýja þótt enginn elti þá

en hinir réttlátu eru óttalausir eins og ungt ljón.

2Þegar uppreisn verður í landinu gerast þar margir höfðingjar

en meðal skynsamra og hygginna manna mun góð skipan lengi standa.

3Maður sem er fátækur og situr á hlut snauðra

er eins og steypiregn sem spillir uppskeru.

4Þeir sem hafna fræðslu hrósa ranglátum

en þeir sem fræðsluna þiggja berjast gegn þeim.

5Illmenni skilja ekki hvað rétt er

en þeir sem leita Drottins skilja allt.

6Betri er fátækur maður og ráðvandur

en ríkur maður og undirförull.

7Sá sem varðveitir kenninguna er hygginn sonur

en sá sem leggur lag sitt við óhófsmenn gerir föður sínum smán.

8Sá sem eykur auð sinn með fjárleigu og vöxtum

safnar honum handa þeim sem líknar fátækum.

9Daufheyrist maður við lögmálinu

verður bæn hans andstyggð.

10Sá sem tælir heiðarlega menn á glapstigu

fellur sjálfur í gröf sína

en ráðvöndum mun vel farnast.

11Ríkur maður þykist vitur

en snauður maður og hygginn sér við honum.

12Þegar hinir réttlátu fagna er mikið um dýrðir

en þegar vegur ranglátra vex forða menn sér.

13Sá sem dylur yfirsjónir sínar verður ekki lánsamur

en sá sem játar þær og lætur af þeim hlýtur miskunn.

14Sæll er sá maður sem ávallt er var um sig

en sá sem herðir hjarta sitt fellur í ógæfu.

15Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn,

svo er ranglátur drottnari yfir magnlítilli þjóð.

16Skilningssljór höfðingi er harður kúgari

en langlífur verður sá sem hatar rangfenginn auð.

17Sá maður, sem blóðsök hvílir á,

er á flótta fram á grafarbakkann,

enginn aðstoði hann.

18Sá sem breytir ráðvandlega mun frelsast

en sá fellur í gryfju sem beitir undirferli.

19Sá sem yrkir land sitt mettast af brauði

en sá sem sækist eftir hégóma mettast af fátækt.

20Áreiðanlegur maður blessast ríkulega

en sá sem fljótt vill verða ríkur sleppur ekki við refsingu.

21Hlutdrægni er röng

en þó fremja menn ranglæti fyrir einn brauðbita.

22Nískur maður er á þönum eftir auði

og veit ekki að örbirgðin mun elta hann uppi.

23Sá sem ávítar mann öðlast síðar meiri hylli

en tungumjúkur smjaðrari.

24Sá sem rænir foreldra sína og segir: „Það er engin synd,“

er lagsbróðir eyðandans.

25Ágjarn maður vekur deilur

en þeim sem treystir Drottni farnast vel.

26Sá sem treystir á eigið hyggjuvit er heimskingi

en sá sem breytir viturlega mun bjargast.

27Sá sem gefur fátækum líður engan skort

en þeim sem byrgir augu sín verður víða formælt.

28Þegar vegur ranglátra vex fela menn sig

en þegar þeir tortímast fjölgar réttlátum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help