Fyrri Samúelsbók 5 - Biblían (2007)

Örkin í höndum Filistea

1Filistear höfðu tekið örk Guðs herfangi og flutt hana frá Ebeneser til Asdód.

2Nú tóku þeir örk Guðs og fluttu hana í hús Dagóns og komu henni fyrir við hliðina á Dagón.

3Morguninn eftir, þegar Asdódbúar fóru á fætur, hafði Dagónlíkneskið fallið til jarðar og lá á grúfu fyrir framan örk Drottins. Þeir tóku þá Dagón og settu hann aftur á sinn stað.

4Þegar þeir fóru á fætur næsta morgun hafði Dagón enn fallið til jarðar og lá á grúfu fyrir framan örk Drottins. Höfuð og hendur höfðu brotnað af Dagón þegar hann féll á þröskuldinn, bolurinn einn var eftir.

5Þetta er ástæða þess að prestar Dagóns og aðrir, sem ganga í hús Dagóns, stíga aldrei á þröskuld Dagóns í Asdód allt til þessa dags.

6Hönd Drottins lagðist þungt á Asdódbúa. Hann skelfdi þá og sló þá kýlum, bæði íbúana í Asdódborg og héraðinu umhverfis.

7Þegar það rann upp fyrir Asdódbúum hvað gerst hafði sögðu þeir: „Við getum ekki lengur varðveitt örk Ísraels Guðs því að hönd hans leggst þungt á okkur og Dagón, guð okkar.“

8Þá sendu þeir menn, sem stefndu saman öllum höfðingjum Filistea, og spurðu þá: „Hvað eigum við að gera við örk Ísraels Guðs?“ Þeir svöruðu: „Það á að flytja örk Ísraels Guðs til Gat.“ Því næst var örk Ísraels Guðs flutt þangað.

9Þegar örkin hafði verið flutt til Gat lagðist hönd Drottins þungt á borgina og olli mikilli skelfingu. Hann sló borgarbúa kýlum, unga sem gamla.

10Þá var örk Guðs send til Ekron. Þegar hún kom þangað hrópuðu borgarbúar: „Örk Ísraels Guðs hefur verið flutt til okkar til að deyða okkur og þjóð okkar.“

11Þá sendu þeir menn, sem stefndu saman öllum höfðingjum Filistea, og sögðu: „Losið ykkur við örk Ísraels Guðs. Sendið hana aftur þangað sem hún á heima svo að hún drepi okkur ekki og þjóðina alla.“

Allir borgarbúar voru felmtri slegnir því að hönd Guðs lagðist mjög þungt á þá.

12Þeir sem héldu lífi voru slegnir kýlum og kvein borgarbúa steig til himins.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help