Sálmarnir 84 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Á gittít. Kóraítasálmur.

2Hversu yndislegir eru bústaðir þínir,

Drottinn hersveitanna.

3Sálu mína langaði til,

já, hún þráði forgarða Drottins,

nú fagnar hjarta mitt og hold

fyrir hinum lifanda Guði.

4Jafnvel fuglinn hefur fundið hús

og svalan á sér hreiður

þar sem hún leggur unga sína:

ölturu þín, Drottinn hersveitanna,

konungur minn og Guð minn.

5Sælir eru þeir sem búa í húsi þínu,

þeir munu ætíð lofa þig. (Sela)

6Sælir eru þeir menn sem finna styrk hjá þér

er þeir hugsa til helgigöngu.

7Er þeir fara um táradalinn

breyta þeir honum í vatnsríka vin

og haustregnið færir honum blessun.

8Þeim eykst æ kraftur á göngunni

og fá að líta Guð á Síon.

9Drottinn, Guð hersveitanna, heyr bæn mína,

hlýð á hana, Jakobs Guð. (Sela)

10Guð, skjöldur vor, sjá

og lít á auglit þíns smurða.

11Því að einn dagur í forgörðum þínum

er betri en þúsund aðrir.

Heldur vil ég standa við þröskuldinn í húsi Guðs míns

en dveljast í tjöldum óguðlegra.

12Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur,

náð og vegsemd veitir Drottinn

og synjar þeim engra gæða

sem ganga í grandvarleik.

13Drottinn hersveitanna,

sæll er sá maður sem treystir þér.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help