Esekíel 18 - Biblían (2007)

Sérhver er ábyrgur gerða sinna

1Orð Drottins kom til mín:

2Hvernig dettur ykkur í hug að taka ykkur þetta orðtak í munn í landi Ísraels:

„Feðurnir eta súr vínber og synirnir fá sljóar tennur?“

3Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð, skal enginn ykkar taka sér þetta orðtak í munn framar í Ísrael.

4Líf allra manna er mín eign, líf föður jafnt og líf sonar er mín eign. Aðeins sá sem syndgar skal deyja.

5Sé einhver réttlátur iðkar hann rétt og réttlæti.

6Hann heldur ekki fórnarmáltíð á fjöllum og hefur ekki upp augu sín til skurðgoða Ísraelsmanna, hann svívirðir ekki eiginkonu náunga síns og leggst ekki með konu sem hefur á klæðum,

7hann beitir engan ofríki, skilar skuldunauti veði sínu, hann fremur ekki rán, hann gefur hungruðum mat sinn, hann skýlir nöktum með klæðum,

8hann lánar ekki gegn vöxtum, stundar ekki okur, hann heldur hendi sinni frá illum verkum, hann fellir óvilhallan úrskurð í deilum manna,

9hann fer að lögum mínum og breytir í öllu eftir reglum mínum og fylgir þeim. Hann er réttlátur. Þess vegna mun hann lifa, segir Drottinn Guð.

10Eignist þessi maður ofbeldishneigðan son sem úthellir blóði og fremur eitthvað af því

11sem faðir hans lét ógert, heldur fórnarmáltíð á fjöllum og svívirðir eiginkonu náunga síns,

12beitir fátæka og hjálparvana ofríki, fremur rán, skilar skuldunauti ekki veði sínu, hefur augu sín upp til skurðgoða, fremur viðurstyggilegt athæfi,

13veitir lán gegn vöxtum og stundar okur, á hann að halda lífi? Nei, hann á ekki að halda lífi. Þar sem hann hefur framið alla þessa svívirðu skal hann deyja. Blóð hans skal koma yfir höfuð hans.

14Nú eignast þessi maður einnig son sem sér allar þær syndir sem faðir hans drýgði, sér þær en drýgir þær ekki.

15Hann heldur ekki fórnarmáltíð á fjöllum, hann hefur ekki upp augu sín til skurðgoða Ísraelsmanna, hann svívirðir ekki eiginkonu náunga síns,

16hann beitir engan ofríki, hann krefst ekki veðs, hann fremur ekki rán, hann gefur hungruðum mat sinn, hann skýlir nöktum með klæðum.

17Hann heldur hendi sinni frá illum verkum, tekur hvorki vexti né stundar okur, framfylgir reglum mínum og fer að lögum mínum, þessi maður á ekki að deyja vegna sektar föður síns, hann á að halda lífi.

18En faðir hans, sem beitti menn þvingun, rændi og vann illvirki meðal skyldmenna sinna, hann skal deyja fyrir sekt sína.

19Samt spyrjið þið: „Hvers vegna tekur sonurinn ekki á sig sekt föður síns?“ Þar sem sonurinn hefur iðkað rétt og réttlæti og hefur gætt þess að halda öll ákvæði laga minna og framfylgja þeim skal hann vissulega lífi halda.

20Sá maður sem syndgar skal deyja. Hvorki skal sonur taka á sig sekt föður síns né faðir taka á sig sekt sonar síns. Réttlæti réttláts manns skal tilreiknað honum sjálfum og ranglæti guðlauss manns skal koma niður á honum sjálfum.

21En snúi guðlaus maður frá öllum sínum syndum, haldi hann öll mín lög og geri það sem er rétt og réttlátt, skal hann sannarlega lifa, hann skal ekki deyja.

22Afbrotanna, sem hann framdi, verður ekki minnst honum til skaða. Hann skal lifa vegna þess réttlætis sem hann iðkar.

23Þóknast mér dauði hins guðlausa? segir Drottinn Guð. Þóknast mér ekki miklu fremur að hann snúi frá breytni sinni og lifi?

24En snúi réttlátur maður frá réttlæti sínu og fremji ranglæti og vinni öll þau sömu viðurstyggilegu verk og hinn guðlausi hefur unnið, á hann þá að halda lífi? Réttlætisverkanna sem hann vann verður ekki minnst. Vegna sviksemi sinnar og syndanna sem hann drýgði skal hann deyja.

25Nú segið þið: „Drottinn breytir ekki rétt.“ En hlustið nú, Ísraelsmenn: Er það breytni mín sem ekki er rétt? Eruð það ekki öllu fremur þið sem breytið ekki rétt?

26Þegar réttlátur maður hverfur frá réttlæti sínu og fremur ranglæti og deyr hefur hann dáið vegna þess ranglætis sem hann framdi.

27Þegar guðlaus maður snýr frá því ranglæti sem hann hefur framið og iðkar rétt og réttlæti mun hann halda lífi.

28Hann hefur séð að sér og snúið baki við afbrotunum sem hann framdi. Hann skal halda lífi, hann skal ekki deyja.

29En Ísraelsmenn segja: „Drottinn breytir ekki rétt.“ Er það breytni mín sem ekki er rétt, Ísraelsmenn, eruð það ekki öllu fremur þið sem breytið ekki rétt?

30Því mun ég dæma ykkur, Ísraelsmenn, sérhvern eftir sinni breytni, segir Drottinn Guð. Snúið við, hverfið frá öllum afbrotum ykkar svo að þau verði ykkur ekki að falli.

31Varpið frá ykkur öllum þeim afbrotum sem þið hafið framið. Fáið ykkur nýtt hjarta og nýjan anda. Hvers vegna viljið þið deyja, Ísraelsmenn?

32Því að mér þóknast ekki dauði nokkurs manns, segir Drottinn Guð. Snúið við svo að þið lifið.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help