Fimmta Mósebók 33 - Biblían (2007)

Móse blessar ættkvíslir Ísraels

1Þannig blessaði guðsmaðurinn Móse Ísraelsmenn áður en hann dó:

2Drottinn kom frá Sínaí,

hann lýsti þeim frá Seír,

ljómaði frá Paranfjöllum.

Hann steig fram úr flokki þúsunda heilagra,

á hægri hönd honum brann eldur lögmálsins.

3Þú sem elskar þjóðirnar,

allir þeirra heilögu eru í hendi þinni.

Þeir hafa fallið þér til fóta,

rísa á fætur er þú skipar.

4Móse setti oss lög

sem eru eign safnaðar Jakobs.

5Jesjúrún fékk konung

þegar höfðingjar þjóðarinnar komu saman,

ættbálkar Ísraels sameinaðir.

6Rúben skal lifa en ekki deyja út

þótt hann verði fámennur.

7Þetta sagði hann um Júda:

Heyr, Drottinn, rödd Júda,

leiddu hann heim til þjóðar sinnar.

Hann barðist fyrir hana með höndum sínum,

hjálpa honum gegn fjandmönnum hans.

8Um Leví sagði hann:

Túmmím þín hafa verið falin Leví

og úrím þín þeim sem þú treystir.

Þú reyndir hann hjá Mara,

sóttir hann til saka við Meríbavatn,

9hann sem sagði um föður sinn og móður:

„Þau hef ég aldrei séð,“

og kannaðist ekki við bræður sína,

leit ekki við börnum sínum.

Því að Levítarnir héldu boð þitt

og hafa varðveitt sáttmála þinn.

10Þeir kenna Jakobi fyrirmæli þín

og Ísrael lög þín.

Þeir fórna þér reykelsisilmi

og leggja alfórn á altari þitt.

11Blessa þú, Drottinn, eignir hans

og megi þér þóknast verk hans.

Brjót þú lendar fjandmanna hans

og hatursmanna svo að þeir rísi ekki upp aftur.

12Um Benjamín sagði hann:

Sá sem Drottinn elskar

skal vera óhultur hjá honum.

Hinn hæsti verndar hann hvern dag,

hann býr milli fjallshlíða hans.

13Um Jósef sagði hann:

Land hans sé blessað af Drottni,

með gæðum himins, með dögginni

og vatni djúpsins sem undir hvílir,

14með þeim gæðum sem sólin færir,

ríkulegum gjöfum mánans,

15hinu besta frá eldfornum fjöllum,

því dýrmætasta af eilífum hæðum,

16með nægtum landsins og öllu sem á því er,

og náð hans sem í þyrnirunnanum býr.

Þessi blessun komi yfir höfuð Jósefs,

yfir hvirfil hans sem er höfðingi bræðra sinna.

17Tignarlegur er frumburður nautsins.

Horn hans eru vísundarhorn,

með þeim rekur hann þjóðir undir,

hrekur þær allar til endimarka jarðar.

Þetta eru tugþúsundir Efraíms,

þúsundir Manasse.

18Um Sebúlon sagði hann:

Gleðstu, Sebúlon, þegar þú heldur úr höfn,

og þú, Íssakar, í tjöldum þínum.

19Þeir stefna ættbálkum til fjallsins

og færa þar réttar fórnir.

Þeir ausa af gnótt hafsins

og fjársjóðum huldum sandi.

20Um Gað sagði hann:

Lofaður sé sá sem eykur við land Gaðs.

Hann liggur í leyni sem ljónynja,

slítur síðan af arm og höfuð.

21Hann valdi sér landið sem fyrst var tekið,

landið sem ætlað var leiðtoganum.

Þar koma höfðingjar fólksins saman.

Hann framfylgdi réttlæti Drottins

og lögum hans í Ísrael.

22Um Dan sagði hann:

Dan er ljónshvolpur

sem kemur stökkvandi frá Basan.

23Um Naftalí sagði hann:

Naftalí er saddur af velvild,

mettaður af blessun Drottins.

Hann skal hljóta vatnið og Suðurlandið.

24Um Asser sagði hann:

Asser sé blessaður umfram hina synina,

hann sé eftirlæti bræðra sinna

og laugi fót sinn olíu.

25Slagbrandar þínir skulu vera úr járni og eir,

afl þitt endist þér alla ævi.

26Enginn er sem Guð Jesjúrúns

sem ríður yfir himininn þér til hjálpar

og á skýjum í hátign sinni.

27Hæli er hinn eldforni Guð,

hér neðra eru eilífir armar hans.

Hann stökkti fjandmönnum undan þér

og sagði: „Eyð þeim.“

28Síðan bjó Ísrael óhultur,

lind Jakobs ein sér

í landi auðugu af korni og víni

þar sem himinninn lætur dögg drjúpa.

29Heill þér, Ísrael. Hver er sem þú?

Þjóðin sem Drottinn frelsaði.

Hann er skjöldurinn sem ver þig,

sverðið sem veitir þér sigur.

Fjandmenn þínir munu skríða fyrir þér,

þú munt traðka á baki þeirra.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help