1Á þessum tíma bjó þarna óþokki sem Seba hét Bíkríson af Benjamínsætt. Hann lét þeyta hafurshornið og hrópaði:
Við eigum enga hlutdeild í Davíð,
engan arfshlut í syni Ísaí.
Ísraelsmenn fari nú hver og einn til tjalds síns.
2Þá sneru allir Ísraelsmenn baki við Davíð og gengu til liðs við Seba en Júdamenn voru tryggir konungi sínum og fylgdu honum frá Jórdan til Jerúsalem.
3Þegar Davíð kom heim til sín í Jerúsalem lét konungur taka hjákonurnar tíu, sem hann hafði skilið eftir til að gæta húss síns, og setja þær í varðhald. Hann sá fyrir þeim en gekk ekki framar inn til þeirra. Þannig lifðu þær sem ekkjur innilokaðar allt til dauðadags.
4Nú gaf Davíð Amasa svohljóðandi fyrirmæli: „Kalla Júdamenn til vopna og komdu hingað sjálfur innan þriggja daga.“
5Þegar Amasa fór að kveðja Júdamenn til vopna seinkaði honum fram yfir tiltekinn tíma.
6Þá sagði Davíð við Abísaí: „Nú verður Seba Bíkríson okkur hættulegri en Absalon. Farðu af stað með menn mína og eltu hann svo að hann taki ekki víggirtu borgirnar og við missum sjónar á honum.“
7Abísaí hélt nú af stað ásamt mönnum Jóabs, Kretum, Pletum og öllu úrvalsliðinu. Þeir fóru út úr Jerúsalem til þess að elta Seba Bíkríson.
8Þegar þeir komu að stóra steininum í Gíbeon var Amasa kominn þangað á undan þeim. Jóab var búinn herklæðum, sverð sitt hafði hann við lend sér í slíðri sem fest var við beltið. Þegar hann gekk fram hrökk sverðið úr slíðrinu.
9Jóab sagði við Amasa: „Hvernig líður þér, bróðir?“ og þreif um leið með hægri hendi í skegg Amasa til þess að kyssa hann.
10En Amasa tók ekki eftir sverðinu, sem Jóab hafði í vinstri hendi, og lagði Jóab því í kvið honum svo að innyflin lágu úti. Jóab þurfti ekki að leggja til hans aftur því að hann var þegar dáinn. Jóab og Abísaí, bróðir hans, héldu síðan áfram að veita Seba Bíkrísyni eftirför.
11Einn af mönnum Jóabs nam staðar hjá líkinu og hrópaði: „Hver sem hefur mætur á Jóab og hver sem styður Davíð fylgi Jóab.“
12Amasa lá í blóði sínu á miðjum veginum. Þegar maðurinn sá að allur herinn nam staðar dró hann Amasa út fyrir veginn. Síðan fleygði hann yfir hann klæði þegar hann sá að allir, sem gengu fram hjá honum, námu staðar.
13Eftir að hann hafði komið Amasa af veginum héldu allir áfram með Jóab til að veita Seba Bíkrísyni eftirför.
14Hann hafði farið til allra ættbálka Ísraels og var nú kominn til Abel Bet Maaka. Allir ættmenn Bíkrí höfðu safnast saman og fylgt honum.
15Nú komu menn Jóabs, umkringdu Seba Bíkríson í borginni Abel Met Maaka og hlóðu vegg að borgarmúrnum. Allt lið Jóabs hófst síðan handa við að brjóta niður borgarmúrinn.
16Þá hrópaði skynsöm kona úr borginni: „Hlustið, hlustið. Segið við Jóab: Komdu, mig langar til að tala við þig.“
17Hann gekk þá til konunnar og hún spurði: „Ert þú Jóab?“ Hann játaði því. Þá sagði hún við hann: „Hlustaðu á orð ambáttar þinnar.“ Hann svaraði: „Ég hlusta.“
18Þá sagði hún: „Áður fyrr var þetta haft að orðtaki: Spyrðu í Abel og málið er útkljáð.
19Við erum friðsamasta og traustasta fólkið í Ísrael en þú ætlar að leggja þá borg í rúst sem er móðir í Ísrael. Hvers vegna ætlar þú að eyða arfleifð Drottins?“
20Jóab svaraði: „Það er víðs fjarri mér. Ég ætla hvorki að eyða né brjóta,
21alls ekki. En maður nokkur frá Efraímsfjalli, Seba Bíkríson að nafni, hefur lyft hendi sinni gegn Davíð konungi. Framseljið hann einan og þá mun ég hverfa frá borginni.“ Konan svaraði Jóab: „Taktu eftir, höfði hans verður fleygt til þín yfir borgarmúrinn.“
22Síðan talaði konan við alla borgarbúa. Þeir létu hálshöggva Seba Bíkríson og fleygðu höfðinu til Jóabs. Því næst lét hann þeyta hafurshornið og héldu þá allir frá borginni, dreifðust og fór hver til síns tjalds. Jóab hélt aftur til Jerúsalem til konungsins.
Embættismenn Davíðs23Jóab var hershöfðingi yfir öllum Ísraelsher og Benaja Jójadason var fyrir Kretum og Pletum.
24Adóníram var yfirmaður kvaðavinnunnar og Jósafat Ahílúðsson var kallari konungs.
25Seja var ríkisritari og Sadók og Abjatar voru prestar. Íra af ætt Jaírs var einnig prestur Davíðs.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.