Jeremía 21 - Biblían (2007)

Jerúsalem mun falla

1Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni þegar Sedekía konungur sendi Pashúr Malkíason og Sefanía prest Maasejason til hans með þessa orðsendingu:

2Leitaðu ráða hjá Drottni fyrir oss því að Nebúkadresar konungur í Babýlon herjar á oss. Ef til vill mun Drottinn gera fyrir oss eitt af mörgum kraftaverkum sínum og knýja Nebúkadresar til undanhalds.

3Jeremía sagði við þá: Þetta skuluð þér segja við Sedekía:

4Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Ég mun snúa vopnunum í höndum yðar gegn yður þegar þér farið að berjast með þeim við konunginn í Babýlon og Kaldea sem sækja að yður utan við borgarmúrana. Ég mun safna þeim saman mitt í þessari borg.

5Ég mun sjálfur berjast gegn yður með uppréttri hendi og sterkum armi, með reiði, heift og mikilli bræði.

6Ég mun ljósta íbúa þessarar borgar, bæði menn og skepnur, þeir skulu deyja í ógurlegri drepsótt.

7Eftir það, segir Drottinn, mun ég selja Sedekía Júdakonung ásamt hirðmönnum hans og þjóð og öllum í þessari borg, sem hafa bjargast undan drepsótt, sverði og hungri, í hendur Nebúkadresari Babýloníukonungi og í hendur fjandmönnum þeirra og þeim sem sækjast eftir lífi þeirra. Þeir munu fella þá með sverðseggjum hlífðarlaust, vægðarlaust og miskunnarlaust.

8Og enn skaltu segja þessu fólki: Svo segir Drottinn: Ég legg fyrir yður veginn til lífsins og veginn til dauðans.

9Sá sem verður um kyrrt í þessari borg mun láta lífið fyrir sverði, hungri og drepsótt. En sá sem gengur út og gefst upp fyrir Kaldeunum sem sitja um yður mun lifa og fá eigið líf að herfangi.

10Því að ég sný andliti mínu gegn þessari borg til að færa henni ógæfu en ekki heill, segir Drottinn. Hún verður seld konunginum í Babýlon í hendur, hann mun brenna hana í eldi.

Skyldur konungsins

11Til konungsættar Júda:

Hlýðið á orð Drottins,

12ætt Davíðs.

Svo segir Drottinn:

Fellið réttláta dóma hvern morgun,

bjargið úr greipum kúgarans

þeim sem rænt hefur verið

svo að heift mín brjótist ekki út sem eldur

vegna illvirkja þeirra,

bál sem enginn getur slökkt.

13Nú ræðst ég gegn þér sem gnæfir yfir dalinn,

gegn klettinum á sléttunni, segir Drottinn.

Þér spyrjið: Hver getur ráðist á oss

og hver kemst inn í bústaði vora?

14Ég dreg yður til ábyrgðar fyrir verk yðar,

segir Drottinn,

og legg eld að skóginum,

hann skal gleypa allt umhverfis sig.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help