Fyrri kroníkubók 13 - Biblían (2007)

Sáttmálsörkin flutt frá Kirjat Jearím

1Þegar Davíð hafði ráðgast við foringja þúsund og hundrað manna liðssveita, við alla leiðtogana,

2ávarpaði hann allan söfnuð Ísraels svofelldum orðum: „Ef það er ykkur að skapi og ef það er vilji Drottins, Guðs okkar, skulum við senda boðbera til bræðra okkar, sem eru um kyrrt í öllum héruðum Ísraels, ásamt prestunum og Levítunum, sem búa í borgum sínum og beitilöndunum umhverfis, til að stefna þeim saman hingað til okkar.

3Því næst skulum við flytja örk Guðs okkar hingað en við létum okkur hana engu varða í stjórnartíð Sáls.“

4Allur söfnuðurinn féllst á að þetta yrði gert því að tillagan var góð að mati alls fólksins.

5Davíð safnaði nú saman öllum Ísrael frá Síhor í Egyptalandi til Lebó Hamat til þess að sækja örkina til Kirjat Jearím.

6Davíð fór upp til Baala, það er að segja til Kirjat Jearím, sem er í Júda, ásamt öllum Ísrael til þess að sækja þangað örk Guðs sem ber nafn Drottins herskaranna sem situr í hásæti yfir kerúbunum.

7Þeir sóttu örk Guðs á nýjum vagni úr húsi Abínadabs. Ússa og Ahjó stjórnuðu vagninum

8en Davíð og allur Ísrael dönsuðu með miklum tilþrifum frammi fyrir augliti Guðs, sungu og léku á sítara, hörpur, pákur, bjöllur og lúðra.

9Þegar þeir komu á þreskivöll Kídons rétti Ússa út hönd sína til að styðja örkina því að uxarnir höfðu hrasað.

10Þá blossaði reiði Drottins upp gegn Ússa og laust hann Ússa samstundis banahögg af því að hann hafði gripið til arkarinnar með hendi sinni. Hann lét lífið þarna fyrir augliti Guðs.

11Davíð var mjög brugðið vegna þess að Drottinn hafði hrifið Ússa svo snögglega í burtu. Hann nefndi þennan stað Peres Ússa, og það heitir hann enn í dag.

12Davíð hræddist Drottin á þessum degi og spurði: „Hvernig get ég flutt örk Guðs heim til mín?“

13Davíð vildi því ekki láta flytja örkina heim til sín í borg Davíðs heldur sneri með hana að húsi Óbeðs Edóms frá Gat.

14Örk Guðs var í húsi Óbeðs Edóms í þrjá mánuði og Drottinn blessaði Óbeð Edóm og allt sem hann átti.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help