Orðskviðirnir 15 - Biblían (2007)

1Mildilegt svar stöðvar bræði

en fúkyrði vekja reiði.

2Af tungu hinna vitru drýpur þekking,

af munni heimskingjanna streymir flónskan.

3Augu Drottins eru alls staðar

og vaka yfir vondum og góðum.

4Hógværð tungunnar er lífstré

en fals hennar veldur hugarkvöl.

5Afglapinn smáir leiðsögn föður síns

en sá sem tekur umvöndun verður hygginn.

6Í húsi hins réttláta er mikill auður

en í gróða hins rangláta er óreiða.

7Varir hinna vitru dreifa þekkingu

en hjarta heimskingjanna fer villt vegar.

8Fórn ranglátra er Drottni andstyggð

en bæn réttsýnna er honum þóknanleg.

9Vegur hins rangláta er Drottni andstyggilegur

en þann sem ástundar réttlæti elskar hann.

10Vægðarlaus hirting bíður þess sem hverfur af réttri leið,

sá sem hatar umvöndun hlýtur að deyja.

11Dánarheimur og undirdjúpin eru Drottni auðsæ,

hve miklu fremur hjörtu mannanna.

12Spottaranum hugnast ekki fortölur,

til viturra manna leitar hann ekki.

13Glatt hjarta gerir andlitið hýrlegt

en sé hryggð í hjarta er hugurinn dapur.

14Hjarta hins vitra leitar að þekkingu

en heimskinginn gæðir sér á fíflsku.

15Fátæklingurinn lítur aldrei glaðan dag

en sá sem vel liggur á er sífellt í veislu.

16Betra er að eiga lítið og óttast Drottin

en mikinn fjársjóð með áhyggjum.

17Betri er einn skammtur kálmetis með kærleika

en alinaut með hatri.

18Bráðlyndur maður vekur deilur

en sá sem seinn er til reiði stillir þrætur.

19Vegur letingjans er eins og þyrnigerði

en gata trúmennskunnar sem rudd braut.

20Vitur sonur gleður föður sinn

en heimskinginn fyrirlítur móður sína.

21Heimskingjanum er fíflskan gleði

en skynsamur maður gengur beinar brautir.

22Áform verða að engu þar sem engin er ráðagerðin

en ef margir leggja á ráðin rætast þau.

23Sá fagnar sem svara kann

og fagurt er orð í tíma talað.

24Leið lífsins liggur upp á við fyrir hinn hyggna

til þess að hann lendi ekki niðri í helju.

25Drottinn rífur niður hús hrokagikksins

en setur föst landamerki ekkjunnar.

26Ill áform eru Drottni andstyggð

en hrein eru vingjarnleg orð.

27Sá spillir heimilishögum sínum sem girnist rangfenginn gróða

en sá lifir lengi sem hatar mútugjafir.

28Hjarta hins réttláta íhugar hverju svara skuli

en munnur ranglátra eys úr sér illsku.

29Drottinn er fjarlægur ranglátum

en bæn réttlátra heyrir hann.

30Vingjarnlegt augnaráð gleður hjartað,

góð frétt eykur holdi á bein.

31Sá sem hlýðir á holla umvöndun

mun búa meðal hinna vitru.

32Sá sem hafnar leiðsögn lítilsvirðir sjálfan sig

en sá sem hlýðir á umvöndun eykur skynsemi sína.

33Að óttast Drottin er leiðsögn til visku,

hógværð er undanfari sæmdar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help