Esekíel 11 - Biblían (2007)

Dómur yfir leiðtogum Jerúsalem

1Því næst hóf andi mig upp og flutti mig að austurhliðinu á húsi Drottins, hliðinu sem snýr í austur. Við innganginn í hliðið voru tuttugu og fimm menn og meðal þeirra sá ég Jaasanja Assúrsson og Pelatja Benajason sem voru leiðtogar fólksins.

2Hann sagði við mig: „Mannssonur, þetta eru þeir menn sem leggja á ráðin um rangindi og brugga ill ráð

3og segja: Þess gerist ekki þörf að reisa hús á næstunni. Borgin er potturinn og við erum kjötið.

4Mannssonur, komdu fram sem spámaður, boðaðu gegn þeim.“

5Þá greip andi Drottins mig og sagði við mig: „Segðu: Svo segir Drottinn: Þetta hafið þið hugsað ykkur, Ísraelsmenn, en ég veit hvað ykkur kom í hug.

6Þið hafið drepið margt af ykkar eigin fólki í þessari borg og þið hafið fyllt götur hennar vegnum mönnum.

7Þess vegna segir Drottinn Guð: Þeir ykkar sem þið hafið vegið og skilið eftir á götum borgarinnar eru kjötið og borgin er potturinn. En ég mun reka ykkur út úr henni.

8Þið óttist sverð og sverð er það sem ég mun senda gegn ykkur, segir Drottinn Guð.

9Ég mun reka ykkur út úr borginni og selja ykkur í hendur útlendingum og fullnægja refsidómnum yfir ykkur.

10Þið munuð falla fyrir sverði. Ég mun dæma ykkur við landamæri Ísraels. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn.

11Borgin skal hvorki verða pottur fyrir ykkur né þið kjötið í honum. Ég mun dæma ykkur við landamæri Ísraels.

12Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn og að þið hafið ekki farið að lögum mínum og ekki framfylgt reglum mínum en hins vegar hafið þið farið eftir reglum þjóðanna sem eru umhverfis ykkur.“

13Á meðan ég flutti þessi spámannlegu orð dó Pelatja Benajason. Þá féll ég fram á ásjónu mína og hrópaði hárri röddu og sagði: „Drottinn Guð. Ætlar þú að eyða öllum sem eftir eru af Ísrael?“

Endurnýjun Ísraels

14Orð Drottins kom til mín:

15Mannssonur, allir bræður þínir, nánustu skyldmenni þín og allir aðrir Ísraelsmenn eru þeir sem íbúar Jerúsalem segja um: „Þeir eru langt frá Drottni, landið var fengið okkur til eignar.“

16Segðu því: Svo segir Drottinn Guð: Þar sem ég flutti þá langt í burt til framandi þjóða og dreifði þeim um löndin varð ég þeim eins konar helgidómur í löndunum sem þeir fóru til.

17Segðu því: Svo segir Drottinn Guð: Ég mun safna ykkur saman frá þjóðunum og sækja ykkur til landanna sem ykkur var dreift um. Síðan mun ég gefa ykkur landið Ísrael.

18Þegar þeir koma þangað munu þeir fjarlægja þaðan allt sem er viðbjóðslegt og vekur andstyggð.

19Þá mun ég gefa þeim eindrægt hjarta og leggja þeim nýjan anda í brjóst. Ég mun fjarlægja steinhjartað úr líkama þeirra og gefa þeim hjarta úr holdi

20svo að þeir fylgi lögum mínum og haldi reglur mínar og framfylgi þeim. Þá skulu þeir verða mín þjóð og ég skal vera þeirra Guð.

21En ég mun láta breytni þeirra koma þeim í koll sem í hjarta sínu fylgja viðbjóðslegum skurðgoðum sínum sem vekja andstyggð, segir Drottinn Guð.

Dýrð Drottins yfirgefur Jerúsalem

22Þá lyftu kerúbarnir vængjum sínum með hjólin sér við hlið en dýrð Guðs Ísraels var yfir þeim.

23Dýrð Drottins hóf sig upp frá borginni miðri og nam síðan staðar á fjallinu austan við borgina.

24Í sama mund hóf andi mig upp og flutti mig í sýn, fyrir anda Guðs, til útlaganna í Kaldeu. Síðan hvarf mér sýnin sem mér hafði birst.

25En ég greindi útlögunum frá öllum orðum Drottins sem hann hafði birt mér.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help