Önnur Mósebók 29 - Biblían (2007)

Vígsla prestanna

1Þannig skaltu fara að þegar þú vígir þá til að þjóna mér sem prestar: Taktu nautkálf og tvo hrúta, alla lýtalausa,

2ósýrt brauð, ósýrðar olíublandaðar kökur og ósýrðar olíusmurðar flatkökur. Þú skalt gera þetta úr fínu hveitimjöli,

3setja brauðin í körfu og bera þau fram í körfunni ásamt nautkálfinum og báðum hrútunum.

4Síðan skaltu láta Aron og syni hans ganga fram að dyrum samfundatjaldsins og þvo þeim úr vatni.

5Því næst skaltu taka skrúðann og klæða Aron í kyrtilinn og hökulkápuna, hökulinn og brjóstskjöldinn og gyrða hann hökulbeltinu.

6Síðan skaltu setja dúkinn á höfuð honum og festa hið heilaga höfuðdjásn á höfuðdúkinn.

7Þá skaltu taka smurningarolíuna og hella henni yfir höfuð hans og smyrja hann.

8Síðan skaltu láta syni hans ganga fram og klæða þá í kyrtlana,

9gyrða þá beltum, bæði Aron og syni hans, og binda á þá höfuðdúka. Þannig skulu þeir taka við prestsþjónustu samkvæmt ævarandi ákvæði.

Því næst skaltu fylla hendur Arons og sona hans.

10Þú skalt færa nautkálfinn að dyrum samfundatjaldsins og Aron og synir hans skulu leggja hendur sínar á höfuð nautkálfsins.

11Þá skaltu slátra nautinu frammi fyrir augliti Drottins við dyr samfundatjaldsins.

12Síðan skaltu taka nokkuð af blóði nautsins og rjóða því á altarishornið með fingri þínum. Öllu hinu blóðinu skaltu hella niður við sökkul altarisins.

13Þá skaltu taka alla netjuna, sem hylur innyflin, stærra lifrarblaðið, bæði nýrun og nýrnamörinn, og láta það líða upp í reyk af altarinu.

14En kjötið af nautinu, húð þess og gor skaltu brenna í eldi utan við herbúðirnar. Þetta er syndafórn.

15Síðan skaltu sækja annan hrútinn. Aron og synir hans skulu leggja hendur sínar á höfuð hrútsins.

16Þú skalt slátra hrútnum, taka blóð hans og stökkva því allt um kring á altarið.

17En hrútinn skaltu hluta í sundur, þvo innyfli hans og fætur og leggja ofan á hin stykkin ásamt höfðinu.

18Síðan skaltu láta allan hrútinn líða upp í reyk af altarinu. Þetta er brennifórn til Drottins, þekkur ilmur, eldfórn Drottni til handa.

19Því næst skaltu sækja hinn hrútinn. Aron og synir hans skulu leggja hendur sínar á höfuð hrútsins.

20Þú skalt slátra hrútnum, taka nokkuð af blóði hans og smyrja á hægri eyrnasnepil Arons, hægri eyrnasnepil sona hans, á þumalfingur hægri handar þeirra og á stórutá hægri fótar þeirra og stökkva því sem eftir er af blóðinu allt um kring á altarið.

21Þá skaltu taka nokkuð af blóðinu, sem er á altarinu, og nokkuð af smurningarolíunni og stökkva á Aron og klæði hans og einnig á syni hans og klæði sona hans ásamt honum. Verður hann þá helgaður og klæði hans og synir hans og klæði sona hans ásamt honum.

22Síðan skaltu taka mörinn úr hrútnum, dindilinn, netjuna, sem hylur innyflin, stærra lifrarblaðið, bæði nýrun og nýrnamörinn og hægra lærið því að þetta er vígsluhrútur.

23Þá skaltu taka einn brauðhleif, eina olíuköku og eitt flatbrauð úr körfunni með ósýrðu brauðunum, sem stendur fyrir augliti Drottins,

24og leggja þetta allt í hendur Aroni og sonum hans. Láttu þá síðan veifa því fram og aftur frammi fyrir augliti Drottins.

25Því næst skaltu taka það aftur úr höndum þeirra og láta það líða upp í reyk af altarinu með brennifórninni sem þekkan ilm fyrir augliti Drottins. Það er eldfórn Drottni til handa.

26Síðan skaltu taka bringukollinn af vígsluhrút Arons og veifa honum sem fórn frammi fyrir augliti Drottins. Það skal koma í þinn hlut.

27Þú skalt helga bringukollinn, sem veifað hefur verið, og lærið, sem veifað hefur verið, og ætlað er í afgjald, stykkin af vígsluhrútnum sem ætluð eru Aroni og sonum hans.

28Aron og synir hans skulu fá þetta frá Ísraelsmönnum samkvæmt ævarandi lagaákvæði því að það er afgjald og verður afgjald frá Ísraelsmönnum af heillafórnum þeirra, afgjald þeirra til Drottins.

29Hin helgu klæði Arons skulu synir hans fá eftir hann svo að þeir verði smurðir í þeim og hendur þeirra fylltar í þeim.

30Sá af sonum hans, sem verður prestur eftir hann, skal skrýðast þeim í sjö daga þegar hann gengur inn í samfundatjaldið til að þjóna í helgidóminum.

31Þú skalt taka vígsluhrútinn og sjóða kjötið af honum á helgum stað.

32Aron og synir hans skulu eta kjötið af hrútnum og brauðið í körfunni við dyr samfundatjaldsins.

33Þeir skulu neyta þess sem friðþægt var með þegar hendur þeirra voru fylltar og þeir vígðir. Enginn óvígður má neyta þess því að það er heilagt.

34Verði einhverju leift til morguns af kjöti vígslufórnarinnar og brauðinu skaltu brenna leifarnar í eldi. Þess má ekki neyta því að það er heilagt.

35Þú skalt fara nákvæmlega þannig að við Aron og syni hans eins og ég hef boðið þér. Í sjö daga skaltu fylla hendur þeirra

36og á hverjum degi skaltu búa syndafórnarnaut til friðþægingar og hreinsa altarið af synd, friðþægja fyrir það og smyrja það til þess að helga það.

37Í sjö daga skaltu friðþægja fyrir altarið og helga það og altarið verður háheilagt. Hver sem snertir altarið verður heilagur.

Hin daglega brennifórn

38Þessu skaltu fórna á altarinu: tveimur veturgömlum lömbum, daglega, stöðugt.

39Öðru lambinu skaltu fórna að morgni en hinu um sólsetur.

40Með öðru lambinu skaltu hafa tíunda hluta úr efu af fínu mjöli, blönduðu með fjórðungi úr hín af olíu úr steyttum ólífum og fjórðungi úr hín af víni til dreypifórnar.

41Hinu lambinu skaltu fórna um sólsetur og hafa með því kornfórn og dreypifórn eins og um morguninn. Þetta skal vera eldfórn handa Drottni til þægilegs ilms.

42Þetta er síendurtekin brennifórn, frá kyni til kyns, við innganginn í samfundatjaldið fyrir augliti Drottins þar sem ég á samfundi við ykkur og þar tala ég við þig.

43Þar mun ég eiga samfundi við Ísraelsmenn og tjaldið helgast af dýrð minni.

44Ég mun helga samfundatjaldið og altarið og Aron og syni hans mun ég vígja til að gegna prestsþjónustu fyrir mig.

45Ég mun búa mitt á meðal Ísraelsmanna, vera þeirra Guð

46og þeir skulu játa að ég er Drottinn, Guð þeirra, sem leiddi þá út úr Egyptalandi til þess að búa á meðal þeirra. Ég er Drottinn, Guð þeirra.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help