Efesusbréfið 2 - Biblían (2007)

Hólpin af náð

1Þið voruð dauð vegna afbrota ykkar og synda

2sem þið lifðuð í áður samkvæmt aldarhætti þessa heims að vilja valdhafans í loftinu, anda þess, sem nú verkar í þeim, sem ekki trúa.

3Eins lifðum við öll fyrrum, lutum jarðbundnum girndum, gerðum það sem okkur lysti og refsidómur Guðs vofði yfir okkur eins og öðrum mönnum.

4En Guð er auðugur að miskunn. Svo mikil var elska hans til okkar að þótt við værum dauð vegna misgjörða okkar

5endurlífgaði hann okkur með Kristi − af náð eruð þið hólpin orðin −

6og reisti okkur upp með Kristi Jesú og bjó okkur stað hjá honum í himinhæðum.

7Þannig vildi hann sýna á komandi öldum ómælanlega auðlegð náðar sinnar og gæsku við okkur í Kristi Jesú,

8því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf.

9Ekki byggt á verkum, enginn skal geta miklast af því.

10Við erum smíð Guðs, sköpuð í Kristi Jesú til góðra verka sem hann hefur áður fyrirbúið til þess að við skyldum leggja stund á þau.

Eitt í Kristi

11Þið skuluð því minnast þessa: Þið voruð upprunalega heiðingjar og kallaðir óumskornir af mönnum sem kalla sig umskorna og eru umskornir á holdi með höndum manna.

12Sú var tíðin er þið voruð án Krists, lokaðir úti frá þegnrétti Ísraelsmanna. Þið stóðuð fyrir utan sáttmálana og fyrirheit Guðs, vonlausir og guðvana í heiminum.

13Nú þar á móti eruð þið, sem eitt sinn voruð fjarlægir, nálægir orðnir í Kristi fyrir blóð hans.

14Því að hann er friður okkar. Hann gerði heiðingja og Ísraelsmenn að einum, hann reif niður vegginn sem skildi þá að, fjandskapinn milli þeirra. Með lífi sínu og dauða

15afmáði hann lögmálið með boðorðum þess og skipunum til þess að setja frið og skapa í sér einn nýjan mann úr báðum.

16Í einum líkama sætti hann þá báða við Guð með því að deyja á krossi þar sem hann deyddi fjandskapinn.

17Og hann kom og boðaði ykkur frið sem fjarlægir voruð, og frið hinum sem nálægir voru.

18Því að fyrir hans tilverknað getum við hvor tveggja nálgast föðurinn í einum anda.

19Þess vegna eruð þið ekki framar gestir og útlendingar heldur eruð þið samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs.

20Þið eruð bygging sem hefur að grundvelli postulana og spámennina en Krist Jesú sjálfan að hyrningarsteini.

21Í honum tengist öll sú bygging saman, vex og verður heilagt musteri í Drottni.

22Með honum eruð einnig þið sambyggðir til andlegs bústaðar handa Guði.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help