Síðari kroníkubók 35 - Biblían (2007)

Páskahátíð Jósía

1Jósía hélt Drottni páska í Jerúsalem og var páskalambinu slátrað á fjórtánda degi fyrsta mánaðarins.

2Hann lét prestana koma til þjónustu sinnar og hvatti þá til starfa í húsi Drottins.

3Levítunum, sem fræddu alla Ísraelsmenn og voru helgaðir Drottni, gaf hann þessi fyrirmæli: „Setjið hina heilögu örk inn í húsið sem Salómon, sonur Davíðs, konungur Ísraels, reisti. Þið þurfið ekki lengur að bera hana á öxlunum. Þjónið nú Drottni og lýð hans, Ísrael.

4Undirbúið ykkur, hver fjölskylda fyrir sig og þjónustuflokkar, samkvæmt ákvörðun Davíðs Ísraelskonungs og fyrirmælum Salómons, sonar hans.

5Takið ykkur stöðu í helgidóminum eftir ættflokkum fjölskyldna ykkar, leikmannanna, og ein sveit af Levítaættum skal svara til hvers flokks.

6Slátrið þá páskalambinu og helgið ykkur. Tilreiðið það fyrir ættbræður ykkar svo að þeir geti framfylgt fyrirmælum Drottins sem hann gaf fyrir munn Móse.“

7Jósía lagði til fénað, lömb og kiðlinga handa leikmönnunum. Var það allt haft til páskafórnanna fyrir þá sem voru viðstaddir. Voru þetta þrjátíu þúsund fjár og þrjú þúsund naut að auki, allt úr einkaeign konungs.

8Embættismenn hans lögðu einnig fram það sem þeir vildu handa almenningi, prestum og Levítum. Hilkía, Sakaría og Jehíel, höfðingjar húss Guðs, gáfu prestunum tvö þúsund og sex hundruð fjár til páskafórna og þrjú hundruð naut.

9Kananja og bræður hans, Semaja og Netaneel, einnig Hasakja, Jeíel og Jósabad, höfðingjar Levítanna, lögðu Levítunum til fimm þúsund fjár til páskafórna og fimm hundruð naut.

10Þegar guðsþjónustan hafði þannig verið undirbúin tóku prestarnir sér stöðu á sínum stað. Levítarnir tóku sér stöðu eftir þjónustuflokkum sínum samkvæmt skipun konungs

11og slátruðu páskalambinu. Prestarnir dreyptu blóðinu sem Levítarnir réttu þeim. Því næst fláðu Levítarnir fórnardýrin.

12Þeir lögðu það sem ætlað var til brennifórnar til hliðar og fengu fjölskyldum leikmannanna svo að þær gætu fært það Drottni að fórn samkvæmt því sem skrifað er í bók Móse. Eins fóru þeir að með nautin.

13Þá steiktu þeir páskalambið við eld samkvæmt fyrirmælunum. Hins vegar suðu þeir helgigjafirnar í pottum, kötlum og skálum og hlupu með þær til leikmannanna.

14Eftir það matbjuggu þeir fyrir sig og prestana. Þar sem prestarnir, niðjar Arons, voru að brenna brennifórnirnar og fitustykkin fram á nótt matbjuggu Levítarnir fyrir sjálfa sig og prestana, niðja Arons.

15Söngvararnir, niðjar Asafs, stóðu á sínum stað samkvæmt ákvörðun Davíðs og sjáenda konungsins, Asafs, Hemans og Jedútúns.

16Þannig var öll þjónusta við Drottin skipulögð þennan dag: Páskahátíðin var haldin og brennifórnir færðar á altari Drottins samkvæmt skipun Jósía konungs.

17Þeir Ísraelsmenn, sem voru viðstaddir, héldu nú páskahátíð. Þeir héldu einnig hátíð hinna ósýrðu brauða í sjö daga.

18Slíkir páskar höfðu ekki verið haldnir í Ísrael síðan á dögum Samúels spámanns. Enginn af konungum Ísraels hafði haldið páskahátíð eins og þá sem Jósía hélt ásamt prestunum, Levítunum og öllum íbúum Júda og Jerúsalem og þeim Ísraelsmönnum sem voru nærstaddir.

19Þessir páskar voru haldnir á átjánda stjórnarári Jósía.

Jósía deyr

20Þegar Jósía hafði lokið öllum viðgerðum á húsi Drottins hélt Nekó, konungur Egyptalands, með her sinn til þess að berjast hjá Karkemis við Efratfljót. Jósía fór gegn honum

21og Nekó sendi boðbera til hans sem sögðu: „Konungur Júda, hvað eigum við sökótt hvor við annan? Í dag held ég ekki gegn þér heldur þeirri konungsætt sem heyr stríð við mig. Guð hefur boðið mér að hafa hraðan á. Hættu því sjálfs þín vegna að kljást við guð sem stendur með mér. Steyptu ekki sjálfum þér í glötun.“

22En Jósía hopaði hvergi. Hann var ákveðinn í að berjast gegn honum og hlustaði ekki á skilaboð Nekós sem komu þó úr munni Guðs. Hann fór því til að berjast gegn honum á sléttunni við Megiddó.

23Þá hæfðu bogaskytturnar Jósía konung sem sagði við þjóna sína: „Farið með mig héðan því að ég er mikið særður.“

24Þjónar hans lyftu honum úr stríðsvagninum og lögðu hann í hinn vagninn sem hann hafði með sér. Þegar þeir höfðu flutt hann til Jerúsalem dó hann og var grafinn í gröfum forfeðra sinna. Allir Júdamenn og Jerúsalembúar hörmuðu Jósía

25og Jeremía orti harmljóð eftir hann. Allir söngvarar og söngkonur minnast Jósía í harmljóðum sínum, allt til þessa dags. Þeir hafa gert það að viðtekinni venju í Ísrael enda eru þau skráð í harmljóðunum.

26Það sem óskráð er af sögu Jósía og verkum hans sem vitnuðu um trú hans samkvæmt því sem skráð er í lögbók Drottins,

27saga hans frá upphafi til enda, er skráð í bók Ísraels- og Júdakonunga.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help