Sálmarnir 54 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð

2þegar Sifítar komu og sögðu við Sál: „Davíð felur sig hjá oss.“

3Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu,

rétt hlut minn með mætti þínum.

4Guð, heyr þú bæn mína,

ljá eyra orðum munns míns.

5Erlendir fjandmenn hafa ráðist gegn mér

og ofbeldismenn sækjast eftir lífi mínu,

eigi hafa þeir Guð fyrir augum. (Sela)

6Sjá, Guð er hjálp mín,

Drottinn er styrkur minn.

7Bölið bitni á fjandmönnum mínum,

eyddu þeim, Drottinn, sakir trúfesti þinnar.

8Þá vil ég færa þér sjálfviljafórnir,

lofa nafn þitt, Drottinn, sem er gott,

9því að það hefur frelsað mig úr hverri neyð

og auga mitt hlakkar yfir fjandmönnum mínum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help