Jesaja 23 - Biblían (2007)

Gegn Týrus og Sídon

1Boðskapur um Týrus:

Kveinið, Tarsisskip,

höfn yðar er eyðilögð.

Við heimkomu frá landi Kitta

barst þeim fregnin.

2Verið hljóðir, strandbúar,

kaupmenn frá Sídon

sem hafið umboðsmenn í förum

3víða um höf.

Kornið sem sáð var við Síkor,

uppskeran við Níl,

gaf þeim arð af verslun við margar þjóðir.

4Fyrirverð þig, Sídon, virkið við hafið sem segir:

„Ég tók ekki jóðsótt og ég fæddi ekki,

ég fóstraði ekki unga drengi

og ól ekki upp meyjar.“

5Þegar fregnin barst til Egypta

og þeir fréttu um Týrus

tóku þeir að skjálfa.

6Farið yfir til Tarsis,

grátið, þér sem á ströndinni búið.

7Er þetta gleðiborgin mikla

sem stofnuð var í fyrndinni?

Íbúar hennar fóru

til að setjast að í fjarlægum löndum.

8Hver hefur búið Týrus slík örlög,

henni sem veitti kórónur,

þar sem kaupmenn voru höfðingjar

og sölumenn hennar meðal tignarmanna á jörðu?

9Drottinn allsherjar ákvað þetta

til að vanvirða allan upphafinn glæsileika

og lægja tignarmenn á jörðinni.

10Ræktaðu land þitt, dóttirin Tarsis,

því að enginn smíðar lengur skip.

11Drottinn rétti hönd sína út yfir hafið,

lét konungsríki riða

og bauð að virki Kanverja skyldu brotin.

12Hann sagði: „Þú kætist ekki framar,

þú svívirta mær, dóttirin Síon.

Af stað. Farðu yfir til Kitta

en þar bíða þín engin grið.“

13Lítið á land Kaldea.

Þeir eru þjóð sem ekki er lengur til.

Assúr ákvað að setja hana á skip.

Hann reisti umsátursturna,

reif niður hallir þeirra,

lagði landið í rúst.

14Kveinið, Tarsisskip,

því að höfn yðar var lögð í eyði.

15Á þeim degi mun Týrus gleymast í sjötíu ár, æviár konungs. Að sjötíu árum liðnum fer fyrir Týrus eins og sagt er í kvæðinu um skækjuna:

16Gríptu gígjuna,

gakktu um í borginni,

þú gleymda skækja.

Leiktu fagurlega,

syngdu lengi

svo að þín verði minnst.

17Að þeim sjötíu árum liðnum mun Drottinn hafa afskipti af Týrus. Hún mun að nýju afla sér skækjulauna og hórast með öllum konungsríkjum veraldar á yfirborði jarðar.

18En tekjur hennar og skækjulaun verða helguð Drottni. Þau verða hvorki geymd né þeim safnað í sjóð heldur verða tekjur hennar fengnar þeim sem búa frammi fyrir Drottni svo að þeir geti etið sig sadda og klæðst veglega.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help