Orðskviðirnir 12 - Biblían (2007)

1Sá sem elskar aga elskar þekkingu

en sá sem hatar umvöndun er heimskur.

2Hinn góði hlýtur velþóknun Drottins

en meinfýsinn mann fyrirdæmir hann.

3Ranglætið veitir engum fótfestu

en réttlætið stendur djúpum rótum.

4Væn kona er kóróna manns síns

en vond kona er sem rotnun í beinum hans.

5Réttlátir hyggja á réttlæti

en ranglátir hafa svik í huga.

6Orð ranglátra eru banvæn

en tunga hinna réttsýnu frelsar þá.

7Ranglátir kollsteypast og hverfa

en hús réttlátra stendur.

8Af vitsmunum sínum hlýtur maðurinn lof

en hinn fláráði verður fyrirlitinn.

9Betra er að vera lítils metinn og eiga þó þræl

en að berast á og skorta brauð.

10Hinn réttláti annast búfé sitt vel

en harðneskja er í hjarta ranglátra.

11Sá sem yrkir land sitt mettast af brauði

en sá sem sækist eftir hégóma er heimskur.

12Hinn rangláti girnist illan feng

en hinn réttláti á sér trygga staðfestu.

13Yfirsjón varanna er ill snara

en hinn réttláti bjargast úr nauðum.

14Ávextir varanna metta mann gæðum

og af handaverkum sínum hlýtur hann umbun.

15Heimskingi telur sig breyta rétt

en vitur maður þiggur ráð.

16Bræði afglapans birtist strax,

greindur maður dylur gremju sína.

17Sannsögult vitni mælir það sem rétt er

en falsvotturinn svik.

18Vanhugsuð orð eru sem sverðalög

en tunga hins vitra græðir.

19Sönn orð standa að eilífu

en lygimál aðeins skamma hríð.

20Svik eru í hjarta hins meinfýsna

en sá gleðst sem stuðlar að friði.

21Hins réttláta bíður ekkert böl

en ógæfan hleðst á hinn rangláta.

22Lygarar eru Drottni andstyggð

en hinir sannorðu eru yndi hans.

23Vitur maður dylur þekkingu sína

en heimskinginn flíkar flónsku sinni.

24Hönd hinna iðnu mun drottna

en hangandi hönd á erfiði í vændum.

25Hugsýki íþyngir hjartanu,

eitt vingjarnlegt orð gleður það.

26Hinn réttláti vísar öðrum veginn

en vegur ranglátra leiðir þá í villu.

27Letin nær ekki bráðinni

en iðnin er dýrmætur auður.

28Á vegi réttlætisins er líf

en glæpaleiðin liggur í dauðann.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help