Tóbítsbók 3 - Biblían (2007)

Bæn Tóbíts

1Ég varð sárhryggur, stundi, grét og tók að biðja í hugarangri mínu:

2Réttlátur ert þú, Drottinn,

öll verk þín eru réttlát,

allir vegir þínir miskunn og sannleikur,

þú dæmir heiminn.

3Minnstu mín nú, Drottinn, og lít í náð til mín.

Refsa mér ekki fyrir syndir mínar og yfirsjónir

né heldur feðra minna.

Þeir syndguðu gegn þér

4og breyttu gegn boðum þínum.

Þá ofurseldir þú oss ránum, herleiðingu og dauða

sem allar þjóðir, sem þú dreifðir oss á meðal,

gerðu orðskviði um oss til háðungar.

5Hinar mörgu refsingar, sem ég sæti,

eru réttlátir dómar fyrir syndir mínar.

Því að vér héldum ekki boðorð þín

og lifðum ekki réttlátlega frammi fyrir þér.

6Ger nú við mig sem þér þóknast,

bjóð að andi minn verði tekinn frá mér

og ég numinn af yfirborði jarðar

og verði sjálfur mold.

Því að betra er mér að deyja en að lifa

og þurfa að heyra álogin brigslyrði

og vera þrunginn harmi.

Drottinn, bjóð þú að ég leysist úr þessum nauðum,

leyf mér að hverfa til eilífra heimkynna.

Snú ei augliti þínu frá mér, Drottinn.

Því að betra er mér að deyja og losna við að heyra lastmæli

en að horfast í augu við alla þessa kvöl um ævidaga mína.

Vandkvæði Söru

7Þennan sama dag bar svo við að Sara Ragúelsdóttir í Ekbatana í Medíu var smánuð af einni af þjónustustúlkum föður hennar.

8En svo var að Sara hafði sjö sinnum gifst en illi andinn Asmódeus deyddi alla menn hennar áður en hún hafði lagst með nokkrum þeirra eins og eiginkonum ber. Þjónustustúlkan sagði við hana: „Það ert þú sjálf sem drepur menn þína. Nú þegar hefur þú gifst sjö mönnum en berð ekki nafn neins þeirra.

9Hví ertu að berja okkur? Er það af því að menn þínir dóu? Komdu þér til þeirra. Guð forði því að við þurfum nokkru sinni að sjá son þinn eða dóttur.“

10Sara varð sárhrygg, brast í grát og fór upp á efri hæðina í húsi föður síns til þess að hengja sig. En henni snerist hugur og hún sagði: „Ætli menn muni ekki særa föður minn og segja við hann: Þú áttir aðeins eina dóttur og elskaðir hana heitt en hún var svo vansæl að hún hengdi sig. Þá yrði ég völd að því að aldraður faðir minn dæi af harmi. Nei. Ég geri réttara í því að hengja mig ekki. Heldur skal ég biðja Drottin að hann láti mig deyja svo að ég þurfi ekki að lifa og heyra fleiri lastmæli.“

Bæn Söru

11Þá þegar teygði hún hendurnar í átt að glugganum og bað:

Lofaður sért þú, miskunnsami Guð,

lofað sé nafn þitt að eilífu.

Lofi þig öll verk þín að eilífu.

12Ég hef ásjónu mína og augu upp til þín.

13Bjóð þú að ég leysist af jörðu

svo að ég þurfi ekki að hlýða á fleiri hnjóðsyrði.

14Þú, Drottinn, veist að ég er óflekkuð af karlmannsvöldum

15og að hvorki hef ég flekkað nafn mitt né föður míns

hér í landi útlegðarinnar.

Ég er einkabarn föður míns,

hann á engan erfingja nema mig

og ekki heldur neinn ættingja eða nákominn

sem mér ber að gefast.

Ég hef þegar misst sjö menn.

Hví skyldi ég lengur lifa?

En viljir þú, Drottinn, ekki láta mig deyja,

hlýð alltént á hnjóðið sem ég sæti.

Guð heyrir bænir Tóbíts og Söru

16Í sömu andrá voru bænir beggja heyrðar frammi fyrir dýrð Guðs.

17Var Rafael sendur til að líkna báðum tveim; Tóbít með því að leysa himnurnar frá augum hans, svo að þau mættu aftur líta ljós Guðs, og Söru Ragúelsdóttur með því að gefa hana Tóbíasi Tóbítssyni að eiginkonu og frelsa hana frá illa andanum Asmódeusi. En svo var að Tóbías átti meiri rétt á að fá hana til eignar en allir aðrir sem þess fýsti.

Um leið og Tóbít sneri aftur inn í hús sitt kom Sara Ragúelsdóttir ofan af efri hæðinni.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help