Fyrra Tímóteusarbréf 2 - Biblían (2007)

Um guðsþjónustu og bænagjörð

1Fyrst af öllu hvet ég til að biðja og ákalla Guð og bera fram fyrirbænir og þakkir fyrir alla menn.

2Biðjið fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að við fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í guðsótta og siðprýði.

3Þetta er gott og þóknanlegt Guði, frelsara vorum,

4sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.

5Einn er Guð. Einn er og meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús

6sem gaf sjálfan sig til lausnargjalds fyrir alla. Það var vitnisburður hans á settum tíma.

7Guð skipaði mig prédikara og postula til að boða hann − ég tala sannleika, lýg ekki − kennara heiðingja í trú og sannleika.

8Ég vil að karlmenn biðjist hvarvetna fyrir með upplyftum heilögum höndum án reiði og tvídrægni.

9Sömuleiðis vil ég að konur séu látlausar í klæðaburði, ekki með fléttur og gull eða perlur og skartklæði

10heldur skrýðist góðum verkum eins og sómir konum er segjast vilja dýrka Guð.

11Kona á að læra í kyrrþey í allri auðmýkt.

12Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum heldur á hún að vera kyrrlát.

13Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva.

14Adam lét ekki tælast heldur lét konan tælast og gerðist brotleg.

15En hún fæðir börnin og verður því hólpin ef hún er staðföst í trú, kærleika og helgun samfara hóglæti.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help