Síðari Samúelsbók 9 - Biblían (2007)

Ríkiserfðir eftir DavíðDavíð og Mefíbóset

1Einhverju sinni spurði Davíð: „Er nokkur maður af ætt Sáls enn á lífi? Ef svo er vil ég sýna þeim manni vinsemd vegna Jónatans.“

2Meðal þeirra, sem þjónuðu fjölskyldu Sáls, var maður að nafni Síba. Hann var nú kallaður fyrir Davíð og konungur spurði hann: „Ert þú Síba?“ Hann svaraði: „Já, herra.“

3Því næst spurði konungur: „Er nokkur eftir af ætt Sáls sem ég get sýnt gæsku Guðs?“ Síba svaraði konungi: „Einn sona Jónatans er á lífi, lamaður á báðum fótum.“

4„Hvar er hann?“ spurði konungur. „Hann býr í húsi Makírs, sonar Ammíels, í Lódebar,“ svaraði Síba.

5Davíð konungur sendi þá menn eftir honum í hús Makírs Ammíelssonar í Lódebar.

6Þegar Mefíbóset, sonur Jónatans, sonar Sáls, kom til Davíðs féll hann fram á ásjónu sína og sýndi honum lotningu. Davíð sagði: „Mefíbóset,“ og hann svaraði: „Já, herra.“

7Þá sagði Davíð við hann: „Vertu óhræddur. Ég ætla að sýna þér vinsemd vegna Jónatans, föður þíns. Ég ætla að skila þér aftur öllum jarðeignum Sáls, afa þíns, og síðan skaltu jafnan matast við borð mitt.“

8Þá varpaði Mefíbóset sér niður fyrir honum og sagði: „Hvað er þjónn þinn, herra, að þú sinnir dauðum hundi eins og mér?“

9Konungurinn kallaði þá á Síba, þjón Sáls, og sagði við hann: „Ég hef gefið syni húsbónda þíns allt sem Sál og fjölskylda hans átti.

10Þú skalt yrkja landið fyrir hann ásamt sonum þínum og vinnumönnum og færa honum hagnaðinn af því svo að sonur húsbónda þíns hafi lífsviðurværi. Mefíbóset, sonur húsbónda þíns, mun héðan í frá jafnan matast við borð mitt.“ Síba átti fimmtán syni og hafði tuttugu vinnumenn.

11Síba svaraði konungi: „Allt þetta mun ég gera, rétt eins og þú, herra minn og konungur, hefur skipað þjóni þínum.“

Mefíbóset sat síðan til borðs með Davíð eins og hann væri einn af sonum konungs.

12Mefíbóset átti ungan son sem hét Míka. Allir sem bjuggu í húsi Síba urðu þjónar Mefíbósets.

13Hann bjó síðan í Jerúsalem af því að hann sat jafnan til borðs með konungi. Mefíbóset var lamaður á báðum fótum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help