Esekíel 27 - Biblían (2007)

Skipið Týrus ferst

1Orð Drottins kom til mín:

2Mannssonur, flyttu harmljóð um Týrus.

3Segðu þetta við Týrus, sem liggur við Ægisdyr, við kaupkonuna sem verslar við framandi þjóðir á fjarlægum eyjum:

Svo segir Drottinn Guð:

Týrus, þú sagðir:

„Fegurð mín er fullkomin.“

4Land þitt er úti í miðju hafi,

þeir sem reistu þig

fullkomnuðu fegurð þína.

5Úr kýprusviði frá Senírfjöllum

voru þiljur þínar gerðar á bæði borð,

sedrusviður, sóttur frá Líbanon,

var hafður í sigluna.

6Úr hæstu eikum Basans

voru árar gerðar,

þilfarið gert úr fílabeini og kýprusviði

frá eyjum Kitta.

7Seglið var glitofið lín frá Egyptalandi,

það var auðkenni þitt,

sóltjöld þín úr bláum purpura og rauðum

frá ströndum Elísa.

8Höfðingjar frá Sídon og Arvad

voru ræðarar þínir,

þínir hæfustu menn, Týrus, voru um borð,

þeir voru hásetar þínir.

9Öldungar frá Gebal og hagleiksmenn þaðan

voru smiðir um borð.

Öll hafskip og áhafnir þeirra komu til þín

til að versla við þig.

10Menn frá Paras, Lúd og Pút

gegndu þjónustu í her þínum,

þeir hengdu upp skjöld og hjálm í þér,

það var prýði þín.

11Menn frá Arvad stóðu á múrum þínum ásamt þínum eigin her og Gammadar voru í turnum þínum. Þeir hengdu skildi sína á múra þína hringinn í kring og fullkomnuðu glæsileik þinn.

12Tarsis verslaði í umboði þínu vegna auðs þíns. Tarsismenn seldu vörur þínar fyrir silfur, járn, tin og blý.

13Javan, Túbal og Mesek versluðu í umboði þínu. Þeir létu þræla og eir fyrir vörur þínar.

14Frá Bet Tógarma voru þér fengnir dráttarhestar, gæðingar og múldýr fyrir vörur þínar.

15Ródosbúar versluðu í umboði þínu. Margir á fjarlægum eyjum voru kaupmenn í þjónustu þinni og guldu þér í fílabeini og íbenviði.

16Edóm verslaði í umboði þínu vegna fjölbreyttrar framleiðslu þinnar. Edómítar seldu vörur þínar fyrir granatsteina, rauðan purpura, glitvefnað, býssuslín, kóralla og rúbína.

17Júda og Ísrael voru kaupmenn þínir og seldu hveiti frá Minnít, vax, hunang, olíu og balsam fyrir varning þinn.

18Damaskus verslaði í umboði þínu með fjölbreytta framleiðslu þína vegna auðs þíns. Menn þaðan seldu vörur þínar fyrir vín frá Helbón og ull frá Sahar.

19Frá Úsal fékkstu smíðajárn, kanel og reyr fyrir vörur þínar.

20Dedan átti viðskipti við þig með söðuláklæði.

21Arabía og allir höfðingjarnir frá Kedar versluðu í umboði þínu og greiddu þér með lömbum, hrútum og geitum.

22Menn frá Saba og Raema voru kaupmenn þínir og létu úrvalssmyrsl, eðalsteina og gull fyrir vörur þínar.

23Haran, Kanne og Eden og kaupmennirnir frá Saba, Assýríu og allri Medíu versluðu við þig.

24Þeir versluðu fyrir þig með skrautklæði, bláar purpurakápur, glitvefnað og þétt fléttuð reipi.

25Tarsisskip voru úlfaldalestir þínar og fluttu vörur þínar.

Þú varst fullfermd og mjög glæsileg

úti á rúmsjó.

26Ræðarar þínir komu þér

út á reginhaf,

austanstormurinn braut þig í spón

úti á rúmsjó.

27Auður þinn, verslunarvörur og annar varningur, hásetar þínir og stýrimenn, smiðirnir sem gerðu við glufurnar og þeir sem versluðu með vörur þínar, allir hermennirnir sem þú fluttir, allur mannfjöldinn um borð, sökk í djúp hafsins daginn sem þú fórst.

28Við neyðaróp sjómanna þinna

skjálfa strendurnar.

29Allir sem knýja árar

flýja skip sitt,

stýrimenn, allir hásetar á hafinu

ganga á land.

30Þeir hefja upp rödd sína

og gráta beisklega,

ausa mold á höfuð sér,

velta sér á jörðinni.

31Þeir raka á sig skalla vegna þín

og gyrðast hærusekk,

gráta beisklega yfir þér

í sárri sorg.

32Í sorg sinni hefja þeir upp harmljóð um þig,

flytja sorgaróð vegna þín:

„Hver er sem Týrus

úti á reginhafi?“

33Þegar varningur þinn kom af hafi

mettaðir þú margar þjóðir.

Þú auðgaðir konunga jarðarinnar

með auði þínum og verslunarvörum.

34Nú liggur þú brotin í spón í sjónum,

í djúpi hafsins.

Varningur þinn og allur mannafli þinn

sökk með þér.

35Allir sem búa á ströndunum

skelfast yfir þér,

hárin rísa á höfði konunganna,

andlit þeirra eru afskræmd.

36Umboðsmenn þínir meðal þjóðanna

hnussa við þér.

Endalok þín skelfa,

þú ert með öllu horfin.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help