1Hvað skal þá segja um forföður vorn Abraham, hvað ávann hann?
2Ef hann varð réttlættur vegna verka sinna mætti hann hrósa sér. Þó ekki fyrir Guði.
3Eða hvað segir ritningin? Abraham trúði Guði og það var honum til réttlætis reiknað.
4Sá sem vinnur verk fær ekki laun fyrir það af náð. Hann fær það sem hann á rétt á.
5En sá hins vegar sem engu afkastar en treystir þeim sem réttlætir óguðlegan fær trú sína metna sér til réttlætis.
6Eins og líka Davíð lýsir þann mann sælan sem Guð tilreiknar réttlæti án tillits til verka:
7Sælir eru þeir sem afbrotin eru fyrirgefin,
syndir þeirra huldar.
8Sæll er sá maður sem Drottinn
tilreiknar ekki synd.
9Nær þessi sæluboðun aðeins til umskorinna manna? Eða líka til óumskorinna? Ég segi: Trúin var Abraham til réttlætis reiknuð.
10Hvenær? Var hann umskorinn þá eða óumskorinn? Hann var ekki umskorinn þá, hann var óumskorinn.
11Hann fékk umskurnina sem tákn, innsigli til staðfestingar á því réttlæti af trú sem hann átti óumskorinn. Þannig skyldi hann vera faðir allra þeirra sem trúa óumskornir svo að réttlætið tilreiknist þeim,
12og eins faðir þeirra umskornu manna sem eru ekki aðeins umskornir heldur feta veg þeirrar trúar sem faðir vor Abraham átti óumskorinn.
Fyrirheitið og Abraham13Það var ekki vegna hlýðni við lögmálið að Abraham og niðjar hans fengu fyrirheitið um að erfa heiminn heldur vegna þeirrar trúar sem réttlætir.
14Ef erfingjar hans eru þeir einir sem lögmálið halda er sú trú gerð að engu og fyrirheitið verður marklaust.
15Því lögmálið vekur reiði en þar sem ekkert lögmál er þar eru ekki heldur lögmálsbrot.
16Því er fyrirheitið bundið við trúna að það er gefið af náð og á að gilda fyrir alla niðja Abrahams, ekki fyrir þá eina sem hafa lögmálið heldur og fyrir þá sem trúa á Guð á sama hátt og hann.
17Hann er faðir okkar allra eins og skrifað stendur: „Föður margra þjóða hef ég sett þig.“ Og það er hann frammi fyrir Guði sem hann trúði á, honum sem gerir dauða lifandi og kallar fram það sem er ekki til, og það verður til.
18Abraham trúði með von, gagnstætt allri von, að hann yrði faðir margra þjóða, samkvæmt því sem Guð sagði við hann: „Svo margir skulu niðjar þínir verða.“
19Og ekki veiklaðist hann í trúnni þótt hann vissi sig kominn að fótum fram − hann var nær tíræður − og Sara ófær um að verða móðir sakir elli.
20Um fyrirheit Guðs efaðist hann ekki í vantrú heldur styrktist í trúnni og gaf Guði dýrðina,
21fullviss þess að Guð megnar að koma því fram sem hann hefur heitið.
22Og það var metið honum til réttlætis.
23En að það var þannig metið var ekki ritað vegna hans eins
24heldur og okkar vegna. Trúin verður tilreiknuð okkur sem trúum á þann Guð sem vakti Jesú, Drottin vorn, upp frá dauðum,
25hann sem var framseldur vegna misgjörða okkar og upp vakinn okkur til réttlætingar.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.