Postulasagan 12 - Biblían (2007)

Ofsóknir

1Um þessar mundir lét Heródes konungur leggja hendur á nokkra úr söfnuðinum og misþyrma þeim.

2Hann lét höggva Jakob, bróður Jóhannesar, með sverði.

3Og er hann sá að Gyðingum líkaði vel lét hann einnig taka Pétur. Þá voru dagar ósýrðu brauðanna.

4Þegar hann hafði handtekið hann lét hann setja hann í fangelsi og fól fjórum fjögurra hermanna varðflokkum að gæta hans. Ætlaði hann eftir páska að yfirheyra hann opinberlega.

5Sat nú Pétur í fangelsinu en söfnuðurinn bað heitt til Guðs fyrir honum.

6Nóttina áður en Heródes ætlaði að leiða hann fram svaf Pétur milli tveggja hermanna, bundinn tveim fjötrum, og varðmenn fyrir dyrum úti gættu fangelsisins.

7Allt í einu stóð engill Drottins hjá honum og ljós skein í klefanum. Laust hann á síðu Pétri, vakti hann og mælti: „Rís upp skjótt!“ Og fjötrarnir féllu af höndum hans.

8Þá sagði engillinn við hann: „Gyrð þig beltinu og bind á þig skóna!“ Hann gerði svo. Síðan segir engillinn: „Far þú í yfirhöfn þína og fylg mér!“

9Hann gekk út og fylgdi honum. En ekki vissi hann að það var raunverulegt sem gerst hafði við komu engilsins, hann hélt sig sjá sýn.

10Þeir gengu nú fram hjá innri og ytri verðinum og komu að járnhliðinu sem farið er um til borgarinnar. Laukst það upp af sjálfu sér fyrir þeim. Þeir fóru út um það og gengu eitt stræti en þá hvarf engillinn allt í einu frá honum.

11Þegar Pétur kom til sjálfs sín sagði hann: „Nú veit ég sannlega að Drottinn hefur sent engil sinn og bjargað mér úr hendi Heródesar og frá öllu því sem Gyðingar ætluðu sér.“

12Og er hann hafði áttað sig gekk hann að húsi Maríu, móður Jóhannesar er kallast Markús. Þar höfðu margir safnast saman og voru á bæn.

13Pétur knúði hurð fordyrisins og stúlka að nafni Róde gekk til dyra.

14Þegar hún þekkti málróm Péturs gáði hún eigi fyrir fögnuði að ljúka upp fordyrinu heldur hljóp inn og sagði að Pétur stæði fyrir dyrum úti.

15Þau sem inni voru sögðu við hana: „Þú ert frávita.“ En hún stóð fast á því að svo væri sem hún sagði. „Það er þá engill hans,“ sögðu þau.

16En Pétur hélt áfram að berja og þegar þau luku upp sáu þau hann og urðu furðu lostin.

17Hann benti þeim með hendinni að vera hljóð, skýrði þeim frá hvernig Drottinn hafði leitt hann út úr fangelsinu og bað þau segja Jakobi og bræðrunum frá þessu. Síðan gekk hann út og fór á annan stað.

18Þegar dagur rann kom ekki lítið fát á hermennina út af því hvað af Pétri væri orðið.

19Heródes lét leita hans en fann hann ekki. Hann lét þá yfirheyra varðmennina og bauð síðan að taka þá af lífi. Síðan fór hann úr Júdeu niður til Sesareu og sat þar um kyrrt.

Heródes deyr

20Heródes hafði verið harla gramur Týrverjum og Sídoningum. Komu þeir saman á fund hans, fengu Blastus, stallara konungs, til fylgis við sig og báðust friðar en land þeirra var háð landi konungs um vistaföng.

21Á tilsettum degi klæddist Heródes konungsskrúða, settist í hásæti og flutti þeim ræðu.

22En fólkið kallaði: „Guðs rödd er þetta en eigi manns.“

23Jafnskjótt laust engill Drottins hann sökum þess að hann gaf ekki Guði dýrðina. Hann var étinn upp af ormum og dó.

24En orð Guðs efldist og breiddist út.

25Barnabas og Sál sneru aftur frá Jerúsalem að loknu erindi sínu og tóku með sér Jóhannes, öðru nafni Markús.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help