Esrabók 8 - Biblían (2007)

Skrá yfir þá sem sneru heim með Esra

1Þetta eru ættarhöfðingjarnir sem fóru með mér heim frá Babýlon í stjórnartíð Artaxerxesar konungs og þeir sem skráðir eru í niðjaskrá þeirra:

2Af niðjum Pínehasar Gersóm.

Af niðjum Ítamars Daníel.

Af niðjum Davíðs Hattús,

3sonur Sekanja.

Af niðjum Parós Sakaría og með honum skráðir 150 karlmenn.

4Af niðjum Pahat-Móabs Eljehóenaí Serajason og 200 karlmenn með honum.

5Af niðjum Sattú Sekanja Jahasíelsson og með honum 300 karlmenn.

6Af niðjum Adíns Ebed Jónatansson og með honum fimm tugir karlmanna.

7Af niðjum Elams Jesaja Ataljason og með honum sjö tugir karlmanna.

8Af niðjum Sefatja Sebadía Mikaelsson og með honum átta tugir karlmanna.

9Af niðjum Jóabs Óbadía Jehíelsson og með honum 218 karlmenn.

10Af niðjum Baní Selómít Jósifjason og með honum 160 karlmenn.

11Af niðjum Bebaí Sakaría Bebaíson og með honum 28 karlmenn.

12Af niðjum Asgads Jóhanan Hakkatansson og með honum 110 karlmenn.

13Af niðjum Adóníkams þeir síðustu og voru nöfn þeirra Elífelet, Jeíel og Semaja og með þeim sex tugir karlmanna.

14Af niðjum Bigvaí þeir Útaí og Sabbúd og með þeim sjö tugir karlmanna.

Undirbúin för til Jerúsalem

15Ég safnaði þeim saman við fljótið sem rennur til Ahava. Þegar við höfðum verið þar í tjöldum í þrjá daga varð mér ljóst að þarna voru leikmenn og prestar, en Levíta fann ég enga.

16Ég sendi því af stað eftir þeim Elíeser, Aríel, Semaja, Elnatan, Jaríb, Elnatan, Natan, Sakaría og Mesúllam, sem voru foringjar, og Jójaríb og Elnatan sem voru vitrir menn.

17Ég sendi þá til Iddó, höfðingja í Kasifja, og lagði þeim í munn orðin sem þeir áttu að flytja Iddó og bræðrum hans í Kasifja, að biðja þá að útvega okkur menn til að þjóna í húsi Guðs okkar.

18Þar sem gæskurík hönd Guðs okkar var yfir okkur sendu þeir okkur vitran mann sem var kominn af Mahelí Levísyni, Ísraelssyni. Það var Serebja ásamt sonum sínum og bræðrum, átján alls.

19Enn fremur sendu þeir Hasabja og með honum Jesaja, sem var afkomandi Merarí, bræður hans og syni þeirra, alls tuttugu menn,

20og loks musterisþjóna sem Davíð og hirðmennirnir höfðu sett til að þjóna Levítunum, alls tvö hundruð og tuttugu musterisþjóna. Þeir voru allir skráðir með nafni.

21Þá lét ég kallara boða föstu þarna við Ahavafljót. Þannig ætluðum við að auðmýkja okkur fyrir Guði okkar og biðja hann um farsæla ferð fyrir okkur, fjölskyldur okkar og farangur.

22Ég kunni ekki við að biðja konunginn um herlið og riddara til að verja okkur fyrir óvinum á leiðinni því að við höfðum sagt við konung: „Hönd Guðs okkar er yfir öllum sem leita til hans og hann verndar þá en máttur hans og reiði kemur yfir þá sem snúa baki við honum.“

23Við föstuðum því og leituðum úrskurðar Guðs um þetta og hann bænheyrði okkur.

24Því næst valdi ég tólf af leiðtogum prestanna ásamt þeim Serebja og Hasabja og tíu bræðrum þeirra.

25Síðan vó ég frammi fyrir þeim silfrið, gullið og áhöldin sem konungur, ráðgjafar hans og hirðmenn og allir þeir Ísraelsmenn, sem þarna voru saman komnir, höfðu gefið til húss Guðs okkar.

26Ég vó og fékk þeim í hendur sex hundruð og fimmtíu talentur silfurs, hundrað silfuráhöld, tvær talentur á þyngd, einnig hundrað talentur gulls

27og tuttugu bikara úr gulli, sem voru þúsund daríka virði, og loks tvö ker úr gullgljáandi góðum eir sem voru gulls ígildi.

28Síðan sagði ég við þá: „Þið eruð helgaðir Drottni og áhöldin eru einnig heilög. Silfrið og gullið er gjöf, gefin Drottni, Guði feðra ykkar, af fúsum og frjálsum vilja.

29Gætið þess því vandlega, þar til þið vegið það frammi fyrir leiðtogum prestanna, Levítunum og ættarhöfðingjum Ísraels í Jerúsalem, í sölum húss Drottins.“

30Prestarnir og Levítarnir tóku þá við silfrinu, gullinu og áhöldunum, sem höfðu verið vegin, til þess að flytja til Jerúsalem, í hús Guðs okkar.

31Við lögðum af stað frá Ahavafljóti tólfta dag fyrsta mánaðarins og héldum til Jerúsalem. Hönd Guðs okkar hvíldi yfir okkur og verndaði okkur á leiðinni fyrir áreitni fjandmanna og stigamanna.

32Þegar við komum til Jerúsalem, héldum við kyrru fyrir í þrjá daga.

33En á fjórða degi voru silfrið, gullið og áhöldin vegin í húsi Guðs okkar og fengin í hendur Meremót presti Úríasyni. Einnig voru Eleasar Pínehasson og Levítarnir Jósabad Jesúason og Nóadja Binnúíson viðstaddir.

34Allt var afhent eftir tölu og þyngd og var þyngdin skráð um leið.

35Þeir sem komu heim úr útlegðinni, hinir landflótta, færðu nú Guði Ísraels brennifórnir, tólf naut fyrir allan Ísrael, níutíu og sex hrúta og sjötíu og sjö lömb og auk þess tólf geithafra í syndafórn. Allt þetta var fært Drottni að brennifórn.

36Loks voru tilskipanir stórkonungsins fengnar satröpum hans og landstjórum skattlandsins handan fljóts. Þaðan í frá veittu þeir þjóðinni og húsi Guðs stuðning.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help