1Hvað samskotin til hinna heilögu í Jerúsalem snertir, þá skuluð einnig þið fara með þau eins og ég hef fyrirskipað söfnuðunum í Galatíu.
2Hvern fyrsta dag vikunnar skal hvert ykkar leggja í sjóð heima hjá sér það sem efni leyfa til þess að ekki verði þá fyrst farið að efna til samskota þegar ég kem.
3En þegar ég svo kem mun ég senda þá sem þið teljið til þess fallna með gjöf ykkar til Jerúsalem og skrifa með þeim.
4Ef betra þykir að ég fari líka geta þeir orðið mér samferða.
5Ég mun koma til ykkar er ég hef farið um Makedóníu því að um Makedóníu legg ég leið mína.
6Ég staldra ef til vill við hjá ykkur eða dvelst jafnvel vetrarlangt til þess að þið getið búið ferð mína, hvert sem ég þá kann að fara.
7Ég vona að Drottinn lofi mér að standa við hjá ykkur nokkra stund og að ég sjái ykkur ekki aðeins rétt í svip.
8Ég stend við í Efesus allt til hvítasunnu
9því að þar hafa mér opnast víðar dyr að miklu verki og ég þarf mörgum andstæðingum að mæta.
10Ef Tímóteus kemur, þá sjáið til þess að hann geti öruggur verið hjá ykkur því að hann vinnur fyrir Drottin eins og ég.
11Enginn lítilsvirði hann. Greiðið heldur ferð hans svo að hann geti haldið áfram óhultur og komist til mín. Því að ég vænti hans með bræðrunum.
12En hvað bróður okkar Apollós varðar, þá hef ég eindregið hvatt hann til að verða samferða bræðrunum til ykkar. En hann var alls ófáanlegur til að fara nú en hann mun koma er hentugleikar hans leyfa.
13Vakið, standið stöðug í trúnni, verið hugdjörf og styrk.
14Auðsýnið kærleika í öllu sem þið gerið.
15Um eitt bið ég ykkur, systkin. Þið vitið að Stefanas og heimili hans eru frumgróði trúaðra í Akkeu og hafa helgað sig þjónustu við heilaga.
16Ég heiti á ykkur: Verið holl slíku fólki og öllum sem vinna og erfiða á sama hátt.
17Ég gleðst yfir návist þeirra Stefanasar, Fortúnatusar og Akkaíkusar. Þeir hafa bætt mér upp fjarvist ykkar,
18verið mér og ykkur til gleði. Hafið mætur á slíkum mönnum.
19Söfnuðirnir í Asíu biðja að heilsa ykkur. Akvílas og Priska ásamt söfnuðinum í húsi þeirra biðja kærlega að heilsa ykkur í Drottins nafni.
20Öll systkinin biðja að heilsa ykkur. Heilsið hvert öðru með heilögum kossi.
21Kveðjan er með eigin hendi minni, Páls.
22Ef einhver elskar ekki Drottin, sé hann bölvaður. Marana þa!
23Náðin Drottins Jesú sé með yður.
24Kærleikur minn er með yður öllum í Kristi Jesú.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.