Jesaja 30 - Biblían (2007)

Gegn bandalagi við Egypta

1Vei hinum þrjósku börnum, segir Drottinn,

sem leiða ráð til lykta sem ekki eru frá mér,

ganga í bandalög sem ekki eru mér að skapi

og hlaða með því synd á synd ofan.

2Þau fara niður til Egyptalands

án þess að ráðgast við mig

til þess að leita hælis undir vernd faraós,

leita skjóls í skugga Egyptalands.

3En vernd faraós verður yður aðeins til skammar

og skjólið í skugga Egyptalands til smánar.

4Þó að höfðingjar séu í Sóan

og sendiboðar komnir til Hanes

5verða þeir allir til skammar

vegna þeirrar þjóðar

sem hvorki veitir hjálp né liðsemd,

heldur einungis skömm og smán.

6Boðskapur um dýrin í Suðurlandinu:

Um land neyðar og þrenginga,

þar sem ljónynjur og öskrandi ljón hafast við,

eiturnöðrur og fljúgandi drekar,

flytja þeir auðæfi sín á bökum asna

og fjársjóði sína á kryppum úlfalda

til þjóðar sem engum verður að liði.

7Liðveisla Egyptalands er fánýt og gagnslaus.

Því nefni ég það Rahab

sem ekkert aðhefst.

Þrjóskri þjóð refsað

8Komdu nú, skráðu þetta á töflu

og ritaðu það á bók

svo að það verði vitnisburður á komandi tímum

og um alla framtíð:

9Þetta er þrjósk þjóð, lygin börn,

börn sem ekki hlusta á leiðsögn Drottins.

10Þau segja við sjáendurna: „Sjáið ekki sýnir,“

og við spámennina: „Sjáið ekki það sem satt er,

segið oss eitthvað geðfellt,

kunngjörið tálsýnir.

11Víkið af veginum, beygið af brautinni,

hættið að setja oss Hinn heilaga Ísraels fyrir sjónir.“

12Þess vegna segir Hinn heilagi Ísraels svo:

„Sökum þess að þér hafnið þessu orði

en reiðið yður á ofbeldi og klæki og treystið á þá

13mun sekt yðar

verða yður sem sprunga

í gnæfandi borgarmúr

sem bungar út.

Sprungan veldur falli,

múrinn hrynur skyndilega og á augabragði.

14Hann hrynur eins og leirker sem er mölbrotið,

svo gersamlega mölbrotið

að ekki finnst brot í mylsnunni

sem taka mætti með eld af arni

eða ausa með vatni úr brunni.“

15Því að svo segir Drottinn Guð, Hinn heilagi Ísraels:

„Fyrir afturhvarf og rósemi munuð þér frelsast,

í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera.“

En þér vilduð þetta ekki

16heldur sögðuð: „Nei,

vér viljum þeysa fram á hestum.“

Þess vegna munuð þér flýja.

„Vér viljum ríða fráum fákum,“

og þess vegna munu þeir fráir sem elta yður.

17Eitt þúsund mun skjálfa vegna hótunar eins manns

og fyrir hótunum fimm manna munuð þér flýja

uns þeir sem eftir verða líkjast merkistöng á fjallstindi

eða gunnfána á hól.

Drottinn miskunnar þjóð sinni

18Því bíður Drottinn þess að sýna yður náð,

þess vegna rís hann upp til að miskunna yður,

því að Drottinn er Guð réttlætisins.

Sælir eru þeir sem á hann vona.

19Já, þú þjóð á Síon,

sem býrð í Jerúsalem,

þú skalt ekki gráta lengur.

Hann verður þér náðugur.

Þegar þú hrópar á hjálp

mun hann bænheyra þig.

20Drottinn mun gefa yður neyðarbrauð og þrengingavatn,

þá verður lærifaðir þinn ekki framar hulinn þér,

heldur munt þú sjá kennara þinn með eigin augum,

21heyra orð að baki þér með eigin eyrum:

„Þetta er vegurinn, farið hann,

hvort sem þér farið til hægri eða vinstri.“

22Þá muntu afhelga silfurslegin skurðgoð þín

og gulli lögð guðalíkneski þín,

þú munt fleygja þeim í burtu eins og óþverra

og segja: „Burt héðan.“

23Þá mun hann gefa því regn

sem þú sáðir í akurinn

og kornið, sem hann gefur af sér,

verður kjarnmikið og gott.

Á þeim degi mun fénaður þinn ganga í víðlendum grashaga

24og uxarnir og asnarnir, sem akurinn erja,

fá saltaða fóðurblöndu að eta

sem dreift er með skóflu og kvísl.

25Á hverju gnæfandi fjalli og hverri hárri hæð

munu lækirnir streyma bakkafullir

á hinum mikla mannfallsdegi

þegar turnarnir hrynja.

26Þá verður tunglsljósið eins og sólarljós

og sólarljósið sjöfaldast,

daginn sem Drottinn bindur um sár þjóðar sinnar

og græðir benjarnar sem hann veitti henni.

Gegn Assýríu

27Nafn Drottins kemur úr fjarlægð,

þungbær reiði hans brennur.

Heiftin freyðir um varir hans

og tunga hans er sem eyðandi eldur.

28Andgustur hans er sem ólgandi vatnsfall

sem tekur manni í háls.

Hann sáldar lýði í síu eyðingarinnar,

beislar þjóðir og leiðir þær afvega.

29Þér munuð syngja ljóð

eins og þegar menn helga sig á aðfaranótt hátíðar

og gleðjast af hjarta,

eins og þeir sem ganga við flautuleik

til fjalls Drottins, til bjargs Ísraels.

30Þá lætur Drottinn hátignarraust sína hljóma

og sýnir að hann slær niður armi sínum

í brennandi reiði með eyðandi eldstungum,

skýfalli, ofviðri og hagli.

31Assúr mun skelfast raust Drottins

þegar hann lýstur með kylfu sinni.

32Hvert kylfuhögg verður refsing

sem Drottinn lætur ríða á honum

við bumbuslátt, gígjuhljóm og helgan dans

er hann reiðir til höggs og herjar á hann.

33Eldfórnargryfjan er fyrir löngu undirbúin,

hún er ætluð konungi,

hún er djúp og breið,

í henni er mikill viður og eldur

sem andgustur Drottins kveikir

eins og brennisteinsflóð.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help