Nehemíabók 11 - Biblían (2007)

Skrá yfir Jerúsalembúa

1Leiðtogar fólksins settust að í Jerúsalem. Aðrir vörpuðu hlutkesti til að fá tíunda hvern mann til að setjast að í Jerúsalem, hinni heilögu borg. Níu tíundu voru um kyrrt í öðrum borgum

2og fólkið blessaði alla þá menn sem af fúsum vilja settust að í Jerúsalem.

3Þetta eru þeir leiðtogar skattlandsins sem bjuggu í Jerúsalem. Í borgunum í Júda bjó hver maður á sinni eign í heimaborg sinni: Ísraelsmenn, prestar, Levítar, musterisþjónar og niðjar þræla Salómons.

4Í Jerúsalem bjuggu af niðjum Júda og Benjamíns:

Af niðjum Júda: Ataja Ússíason, Sakaríasonar, Amarjasonar, Sefatjasonar, Mahalaleelssonar sem var niðji Peresar,

5enn fremur Maaseja Barúksson, Kol-Hósesonar, Hasajasonar, Adajasonar, Jójaríbssonar, Sakaríasonar sem var afkomandi Sela.

6Niðjar Peresar, sem bjuggu í Jerúsalem, voru alls fjögur hundruð sextíu og átta vopnfærir menn.

7Niðjar Benjamíns voru: Sallú Mesúllamsson, Jóedssonar, Pedajasonar, Kólajasonar, Maasejasonar, Ítíelssonar, Jesajasonar

8og á eftir honum Gabbaí Sallaí, alls níu hundruð tuttugu og átta vopnfærir menn.

9Jóel Síkríson var foringi þeirra og Júda Hasnúason næstæðstur yfir borginni.

10Af prestunum: Jedaja, Jójaríb, Jakín,

11Seraja Hilkíason, Mesúllamssonar, Sadókssonar, Merajótssonar, Ahítúbssonar, höfðingi húss Guðs,

12og embættisbræður þeirra sem veittu þjónustu í húsinu, alls átta hundruð tuttugu og tveir menn. Enn fremur Adaja Jeróhamsson, Pelaljasonar, Amsísonar, Sakaríasonar, Pashúrssonar, Malkíasonar

13og bræður hans, tvö hundruð fjörutíu og tveir ættarhöfðingjar, og Amassaí Asareelsson, Ahasísonar, Mesillemótssonar, Immerssonar

14og bræður hans, hundrað tuttugu og átta vopnfærir menn. Sabdíel Haggedólímsson var foringi þeirra.

15Af Levítunum: Semaja Hassúbsson, Asríkamssonar, Hasabjasonar, Búnnísonar.

16Sabbetaí og Jósabad voru þeir af leiðtogum Levítanna sem stjórnuðu þjónustunni við hús Guðs utanhúss

17og Mattanja Míkason, Sabdísonar, Asafssonar, stjórnaði lofsöngnum og var forsöngvari þakkarsálmsins við bænagjörðina, Bakbúkja, sem var næstæðstur embættisbræðra sinna, og Abda Sammúason, Galalssonar, Jedútúnssonar.

18Levítarnir í hinni heilögu borg voru alls tvö hundruð áttatíu og fjórir.

19Hliðverðirnir: Akkúb, Talmón og embættisbræður þeirra sem gættu hliðanna, alls hundrað sjötíu og tveir menn.

20Aðrir Ísraelsmenn, prestarnir og Levítarnir, bjuggu í hinum borgunum í Júda, hver á sinni eign.

21Musterisþjónarnir bjuggu á Ófel og voru Síha og Gispa yfir þeim.

22Ússí var foringi Levítanna í Jerúsalem. Hann var sonur Baní Hasabjasonar, Mattanjasonar, Míkasonar, einn Asafsniðja, en þeir áttu að syngja við guðsþjónustuna í húsi Guðs.

23Um þá gilti konungleg tilskipun og ákveðin regla um hvað söngvararnir áttu að syngja á hverjum degi.

24Petaja Mesesabeelsson, afkomandi Sera Júdasonar, var konungi til aðstoðar í öllu sem þjóðinni viðkom.

Íbúar í borgum Júda og Benjamíns

25Í bæjunum og á sléttunum umhverfis bjuggu ýmsir af niðjum Júda: í Kirjat Arba og þorpum hennar, í Díbon og þorpum hennar, í Jekabeel og þorpum hennar,

26í Jesúa, Mólada og Bet Pelet,

27í Hasar Súal, í Beerseba og þorpum hennar,

28í Siklag og Mekóna og þorpum hennar,

29í En Rimmon, Sorea, Jarmút,

30Sanóa, Adúllam og þorpum hennar, í Lakís og á sléttum hennar og í Aseka og þorpum hennar.

Þannig komu þeir sér fyrir á svæðinu frá Beerseba að Hinnomssonardal.

31Niðjar Benjamíns bjuggu í Geba, Mikmas og Aja, einnig í Betel og þorpunum þar í kring,

32í Anatót, Nób, Ananja,

33Hasór, Rama, Gittaím,

34Hadíd, Sebóím, Neballat,

35Lód og Ónó, í Smiðadal.

36Nokkrir af flokkum Levítanna í Júda fluttu til Benjamín.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help