Fyrri kroníkubók 14 - Biblían (2007)

Davíð í Jerúsalem

1Híram, konungur í Týrus, sendi menn til Davíðs með sedrusvið og einnig sendi hann steinsmiði og trésmiði til þess að byggja hús handa honum.

2Þá skildi Davíð að Drottinn hafði fest hann í sessi sem konung yfir Ísrael því að hann hafði hafið konungdóm hans til vegs vegna þjóðar sinnar, Ísraels.

3Davíð tók sér fleiri konur í Jerúsalem og eignaðist fleiri börn.

4Þetta eru nöfn sonanna sem hann eignaðist í Jerúsalem: Sammúa, Sóbab, Natan, Salómon,

5Jíbhar, Elísúa, Elpalet,

6Nóga, Nefeg, Jafía,

7Elísama, Beeljada og Elífelet.

Davíð sigrar Filistea

8Þegar Filistear fréttu að Davíð hefði verið smurður til konungs yfir öllum Ísrael héldu allir Filistear upp eftir til þess að taka Davíð til fanga. Um leið og Davíð frétti þetta fór hann á móti þeim.

9Filistear voru þá komnir og höfðu dreift sér um Refaímsléttu.

10Þá spurði Davíð Guð: „Á ég að fara gegn Filisteunum? Muntu selja þá mér í hendur?“ Drottinn svaraði honum: „Farðu upp eftir því að ég mun selja þá þér í hendur.“

11Þá fór hann upp eftir til Baal Perasím, sigraði þá þar og sagði: „Guð hefur rofið fylkingar fjandmanna minna með hendi minni líkt og vatn sem brýtur sér leið.“ Þess vegna er þessi staður nefndur Baal Perasím, það er Herra rofsins.

12Filistearnir skildu skurðgoð sín þar eftir og Davíð skipaði að þau skyldu brennd í eldi.

13Nú dreifðu Filistear sér aftur um Refaímsléttu.

14Davíð spurði þá Guð á ný og hann svaraði: „Þú skalt ekki fara á eftir þeim. Farðu á svig við þá og gerðu árás á þá frá bakatrjánum.

15Þegar þú heyrir þrusk skóhljóði líkast í hæstu greinum bakatrjánna skaltu bregðast skjótt við því að þá fer Guð á undan þér til þess að sigra her Filistea.“

16Davíð gerði eins og Guð hafði fyrir hann lagt og sigraði Filistea á öllu svæðinu frá Gíbeon til Geser.

17Frægð Davíðs barst um öll lönd og Drottinn lét allar þjóðir óttast hann.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help