Esekíel 29 - Biblían (2007)

Gegn faraó

1Á tólfta degi tíunda mánaðar á tíunda árinu kom orð Drottins til mín:

2Mannssonur, snúðu þér að faraó, konungi Egyptalands, og spáðu gegn honum og öllu Egyptalandi.

3Segðu: Svo segir Drottinn Guð:

Nú held ég gegn þér, faraó,

konungur Egyptalands,

þú mikli krókódíll

sem liggur milli kvísla Nílar

og segir: „Ég á kvíslar Nílar

og bjó þær til.“

4Ég set króka í kjálka þína,

læt fiskana í fljótinu loða við hreistrið á þér,

dreg þig upp úr fljótskvíslum þínum

ásamt öllum fiskunum í Níl

sem loða við hreistur þitt.

5Síðan varpa ég þér út í eyðimörkina

ásamt öllum fiskunum úr kvíslum þínum.

Þú munt liggja úti á víðavangi

og verður hvorki tekinn upp né grafinn.

Ég mun gefa þig dýrum merkurinnar og fuglum himinsins að æti

6og allir íbúar Egyptalands

munu skilja að ég er Drottinn.

Þú reyndist Ísraelsmönnum reyrstafur.

7Þegar þeir gripu um þig hrökkst þú í sundur

og fleiðraðir alla hönd þeirra

og þegar þeir studdust við þig brotnaðir þú

og þeir kiknuðu allir í mjöðmum.

8Þess vegna segir Drottinn Guð:

Ég sendi sverð gegn þér

og tortími mönnum og skepnum.

9Egyptaland skal verða eyðimörk og rústahaugur.

Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.

Þú hefur sagt: „Ég á Níl,

ég bjó fljótið til.“

10Þess vegna held ég nú gegn þér og kvíslum þínum og geri Egyptaland að rústum og eyðimörk frá Migdól til Sýene og að landamærum Kúss.

11Hvorki maður né dýr munu stíga þar fæti né fara þar um og það verður óbyggt í fjörutíu ár.

12Ég geri Egyptaland að eyðimörk innan um önnur eydd lönd og borgir landsins skulu liggja í eyði í fjörutíu ár eins og aðrar borgir í rústum. Ég mun tvístra Egyptum á meðal framandi þjóða og dreifa þeim um löndin.

13Enn fremur segir Drottinn Guð svo: Þegar fjörutíu ár eru liðin mun ég safna Egyptum saman frá þjóðunum sem þeim var dreift á meðal.

14Þá mun ég gerbreyta högum Egypta og flytja þá aftur til Patróshéraðs, en þaðan eru þeir. Þar munu þeir mynda lítilfjörlegt ríki,

15lítilfjörlegra en önnur konungsríki. Það mun ekki framar hefja sig yfir aðrar þjóðir. Ég mun gera þá of fáa til að drottna yfir öðrum þjóðum.

16Ísraelsmenn munu ekki treysta Egyptum framar og ekki minna mig oftar á sekt sína með því að fylgja þeim. Þá skulu þeir skilja að ég er Drottinn Guð.

Sigur Nebúkadresars á Egyptum

17Á fyrsta degi fyrsta mánaðarins á tuttugasta og sjöunda árinu kom orð Drottins til mín:

18Mannssonur, Nebúkadresar, konungur í Babýlon, hefur látið her sinn vinna stórvirki á Týrus. Hvert höfuð varð sköllótt og hver öxl varð slitin. En hvorki hann né her hans hlutu nein laun frá Týrus fyrir verkið sem þeir unnu gegn henni.

19Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Hér með gef ég Nebúkadresari, konungi í Babýlon, Egyptaland. Hann mun taka með sér fjársjóði Egypta, ræna því sem þeir hafa rænt og taka herfang þeirra herfangi og það verða laun hers hans.

20Ég hef fengið honum Egyptaland að launum fyrir erfiðið sem hann lagði á sig fyrir mig, segir Drottinn Guð.

21Á þeim degi læt ég Ísraelsmönnum vaxa horn og ég mun ljúka upp munni þínum meðal þeirra. Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help